Lífið

Will Ferrell staddur á Íslandi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Will Ferrell í hlutverki Ron Burgundy í kvikmyndinni Anchor man.
Will Ferrell í hlutverki Ron Burgundy í kvikmyndinni Anchor man.
Leikarinn góðkunni Will Ferrell er staddur á Íslandi þessa dagana. Ekki er ljóst hver ástæða heimsóknarinnar er, en talið er líklegt að hún sé í tilefni 48 ára afmæli hans á fimmtudag. Þetta kemur fram á vef Pressunnar.

Vinsælt þykir á meðal stórstjarna að fagna afmælisdeginum hér á landi, en nú nýlega hélt leikkonan Natalie Portman upp á 34 ára afmæli sitt sem og Jay-Z sem fagnaði sínum 45 árum, ásamt eiginkonu sinni Beyoncé, meðal annars á Suðurlandi.

Hollywoodleikarinn er einna best þekktur fyrir hlutverk sín í kvikmyndunum Austin Powers, Elf, Anchor man og Talladega Nights, svo eitthvað sé nefnt.

Hér má sjá brot af hans bestu kvikmyndum.


Tengdar fréttir

Beyoncé birtir fallega skýjamynd

Telja aðdáendur söngkonunnar víst að Beyoncé hafi tekið myndina til að heiðra minningu Doris Rowland, móður Kelly Rowland.

Beyoncé og Jay-Z við Skógafoss

Bandaríska stjörnuparið Beyoncé og Jay-Z heldur áfram að virða fyrir sér náttúru Íslands og lentu við Skógafoss um eittleytið í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×