Lífið

Ekki eitrað fyrir B.B. King

Birgir Olgeirsson skrifar
B.B. King á tónleikum 2012.
B.B. King á tónleikum 2012. Vísir/AP
Meinafræðingar segja engar sannanir fyrir því að eitrað hafi verið fyrir blúsgoðsögninni B.B. King. Þessi niðurstaða er opinberuð rúmum einum og hálfum mánuði eftir að dætur blúsarans héldu því fram að tveir nánustu aðstoðarmönnum föður þeirra hefðu eitrað fyrir honum.

Dánarorsök Kings eru rakin til Alzheimer´s-sjúkdómsins sem hann glímdi við, en hann var einnig hjartveikur og með sykursýki 2.

Dæturnar lögðu fram þessar ásakanir um svipað leyti og þær höfðu vefengt erfðaskrá föður þeirra og reyndu að komast yfir dánarbú hans sem er metið á 5 til 10 milljónir dollar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×