Lífið

Fjallið reynir að verja titilinn: „Krem á þér höfuðið“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Þeir sem ekki fylgjast með Hafþóri Júlíusi Björnssyni á netinu eiga ekki von á góðu.
Þeir sem ekki fylgjast með Hafþóri Júlíusi Björnssyni á netinu eiga ekki von á góðu.
Hinn grjótharði Hafþór Júlíus Björnsson, eða Fjallið eins og hann er stundum kallaður, hyggst reyna að verja titil sinn í dag þegar keppnin Sterkasti maður Evrópu fer fram. Hann leyfir fylgjendum sínum á Instagram að fylgjast grannt með gangi mála. Gengur hann jafnvel svo langt að hóta þeim lífláti, fylgist fólk ekki með.

Í myndbandi sem hann birti á samfélagsmiðlinum benti hann aðdáendum sínum á að fylgjast með keppninni á officialstrongman.com. Þeir sem gerðu það ekki ættu ekki von á góðu.

„Ég finn þig, leita þig uppi og krem á þér höfuðið,“ sagði hann í myndbandinu sem hjá má hér að neðan.

Kappinn kynntur til leiks.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×