Krabbameinssjúkur maður dæmdur fyrir framleiðslu á metamfetamíni Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. júlí 2015 21:53 George Rogers (í efri röðinni, lengst til vinstri) og kónar hans fengu samtals 80 ára langa fangelsisdóma. mynd/sky news
Krabbameinssjúkur maður á áttræðisaldri hefur verið dæmdur í 18 ára fangelsi fyrir að stýra glæpahring sem virðast hafa leitað innblásturs í hina geysivinsælu sjónvarpsþætti Breaking Bad. Hinn 78 ára gamli George Rogers hafði frumkvæði að því að rotta saman mönnum í glæpagengi, þar á meðal efnafræðingi sem átti að sjá um framleiðslu á metamfetamíni. Þrátt fyrir veikindi sín tókst honum að setja saman hóp manna hvaðanæva af Bretlandseyjum sem keypti kíló af kókaíni með það að markmiði að láta sölu á því fjármagna tækjakaup fyrir metamfetamínframleiðsluna. Þessi atburðarás er talin minna óþægilega mikið á söguþráð þáttanna Breaking Bad sem fjalla um efnafræðikennarann Walter White sem hefur framleiðslu á efninu til að greiða fyrir dýra krabbameinsmeðferð.Breaking Bad fjallar um ævintýri þeirra Walter White og Jesse Pinkman.George Rogers kom þó efni sínu aldrei á markað því að breskir lögreglumenn náðu að hafa hendur í hári hans áður en fyrsti skammturinn hafði verið seldur. Lögreglan komst á snoðir um fyrirætlanir Rogers eftir að hafa hlerað bifreiðar kóna hans. Átján meðlimir gengisins hafa nú verið dæmdir til fangelsisvistar næstu fjögur til 18 árin eftir þriggja mánaða löng réttarhöld í Bristol. Við réttarhöldin kom meðal annars fram að Rogers, sem losnaði úr fangelsi meðan ráðabruggið var í bígerð, hafði ætlað að selja efnið í suðvesturhluta Bretlandseyja en í frétt Sky News um málið segir að metamfetamín sé tiltölulega óalgengt á þeim slóðum. George Rogers hlaut 18 ára dóm fyrir aðild sína að málinu.
Mest lesið Greip til hnífs því hún óttaðist að sonurinn kæmi að sér látinni Innlent Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent „Ég leyni því ekki að við erum í vanda stödd“ Innlent „Mönnum finnst að lögin eigi ekki að gilda þegar réttlæti þeirra er annað“ Innlent Halda íshellaferðum áfram þrátt fyrir að fá ekki leyfi Innlent Peskov staðfestir að Rússar hafi fengið Covid-próf frá Bandaríkjunum Erlent Kynferðisofbeldið sýnt í dómsal Erlent Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Innlent Ethel Kennedy er látin Erlent Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða Innlent Fleiri fréttir Kynferðisofbeldið sýnt í dómsal Eftirlifendur kjarnorkusprengjanna hlutu friðarverðlaun Nóbels Dreifðu ösku látins félaga í auga Miltons Réttarhöld yfir Diddy hefjast 5. maí 2025 Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Peskov staðfestir að Rússar hafi fengið Covid-próf frá Bandaríkjunum Ethel Kennedy er látin Tíu létust þegar Milton fór yfir Flórída Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Gerðu andlitsmynd af stærstu pöddu jarðsögunnar Þrettán látist vegna Marburg-veiru og ekkert bóluefni til Hefur ekki enn þorað út í morgun Enn varað við ofsaveðri en hreinsunarstörf hafin Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Skotárás við ísraelskt fyrirtæki í Gautaborg Flugstjórinn lést í miðri flugferð Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ Gætu ekki flúið þótt þau vildu Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Sjá meira