Formúla 1

Sebastian Vettel vann í Ungverjalandi

Vettel lét forystuna ekki af hendi eftir magnaða ræsingu.
Vettel lét forystuna ekki af hendi eftir magnaða ræsingu. Vísir/Getty
Eftir dramatíska keppni kom Sebastian Vettel fyrstur í mark á Ferrari bílnum. Daniil Kvyat á Red Bull varð annar og Daniel Ricciardo varð þriðji einnig á Red Bull.

Ræsingin tókst ekki í fyrstu tilraun, Felipe Massa lagði Williams bílnum ekki á réttum stað fyrir ræsinguna.

Vettel glímdi við Lewis Hamilton í endurræsingunni og fór út af og varð tíundi. Dagurinn hans varð bara svartari, Hamilton missti rafafl og fékk refsingu fyrir að valda árekstri.

Kimi Raikkonen varð annar á eftir liðsfélaga sínum eftir ræsinguna. Ferrari átti ótrúlega ræsingu.

Pastor Maldonado ók Lotus bílnum á Sergio Perez á Force India og sendi hann upp í loft. Maldonado var svo refsað fyrir með því að aka í gegnum þjónustusvæðið.

Red Bull ökumennirnir áttu annasaman dag og börðust vel fyrir sínum stigum.Vísir/Getty
Öryggisbíllinn kom út að lokum eftir að Nico Hulkenberg lenti á varnarvegg í beygju eitt á Force India bílnum. Fyrr hafði sýndar öryggisbíll verið notaður.

Raikkonen þurfti að koma inn á þjónustuhlé á hring 52 til að láta endurræsa bílinn. Hann hætti svo keppni skömmu eftir það. Það dugði ekki að slökkva og kveikja.

Ricciardo reyndi að taka fram úr Nico Rosberg í fyrstu beygju, læsti dekki og fór fram úr og framhjá, Rosberg tók fram úr honum í kjölfarið og lokaði á Ricciardo og lenti á framvæng Ricciardo og sprengdi afturdekk.

Rosberg komst á þjónustusvæðið og kom út á brautina aftur fyrir aftan Hamilton. Ótrúleg atburðarás í dag.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort með öllum helstu úrslitum helgarinnar.




Tengdar fréttir

Allison: Raikkonen jafn fljótur og Vettel

Kimi Raikkonen hefur færri stig en liðsfélagi sinn hjá Ferrari, Sebastian Vettel. Ekki vegna þess að Finninn er hægari heldur vegna þess að Vettel gerir nánast aldrei mistök, samkvæmt tæknistjóra liðsins James Allison.

Hamilton fljótastur og Perez valt

Lewis Hamilton var fljótastur á báðum æfingum dagsins í Ungverjalandi. Nico Rosberg á Mercedes varð annar á fyrri æfingunni en Daniil Kvyat á Red Bull varð annar á seinni æfingunni.

Lewis Hamilton á ráspól í Ungverjalandi

Lewis Hamilton á Mercedes tryggði sér ráspól í Ungverjalandi. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.

Hamilton: Lítil skref eru lykillinn

Lewis Hamilton tryggði Mercedes sæti á fremstu rásröð 21. kappaksturinn í röð. Hver sagði hvað eftir tímatöku dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×