Körfubolti

Jakob: Skiptir ekki öllu máli þó að ég hafi tekið mér frí eitt sumar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson einbeittur á æfingu liðsins í Ásgarði fyrr í vikunni.
Jakob Örn Sigurðarson einbeittur á æfingu liðsins í Ásgarði fyrr í vikunni. vísir/andri marinó
Jakob Örn Sigugurðarson, landsliðsmaður í körfubolta, var ekki með íslenska liðinu í fyrra þegar það vann sér inn sæti á EM 2015.

„Mér finnst löngunin ekki 100 prósent til staðar. Þá finnst mér ekki rétt gagnvart hinum strákunum og KKÍ að vera með. Ef ég ætla ekki að vera með af fullum krafti er betra að velja einhvern annan,“ sagði Jakob við Vísi um ákvörðun sína í byrjun júlí á síðasta ári.

Sjá einnig:Jón Arnór: Yrði afrek að vinna einn leik á EM

Hann missti af einu mesta ævintýri íslenska landsliðsins þegar það vann Bretlands tvívegis og tryggði sér sæti á stórmóti í fyrsta sinn.

Jakob sneri aftur í landsliðið fyrr á þessu ári þegar hann tók þátt í Smáþjóðaleikunum. Það var aldrei spurning í hans huga um að vera með aftur.

„Mig langaði alltaf að vera með og koma aftur inn í þetta. Mig hlakkaði bara til,“ sagði Jakob Örn við Vísi á fyrstu æfingu liðsins fyrr í vikunni.

Jakob Örn var í silfurliði Íslands á Smáþjóðaleikunum.vísir/andri marinó
Maður á að hugsa um þetta

Jakob segir alla hafa sýnt fullan skilning á því að hann vildi taka sér stutt frí frá landsliðinu.

„Það var fullur skilningur á því. Það er ekki eins og ég hafi verið í burtu í langan tíma. Ég er búinn að vera í landsliðinu í tóf ár og frí eitt sumar ætti nú ekki að skipta öllu máli. Það hafa margir gert það,“ sagði Jakob.

Sjá einnig:Pedersen: Við munum spila til að vinna í öllum leikjum í sumar

„Það er ekki eins og ég sé eitthvað nýr í þessu. Hér eru leikmenn sem ég hef spilað með í langan tíma og þekki vel.“

Skotbavörðurinn öflugi kveðst mjög spenntur fyrir þessu stóra verkefni landsliðsins, en liðið verður nú meira og minna saman í sex vikur fram að móti og spilar meðal annars á tveimur æfingamótum.

„Það er rosalega gaman að hitta alla aftur. Maður er búinn að bíða eftir þessu síðan Smáþjóðaleikarnir enduðu, að byrja svona alvöru undirbúning,“ sagði Jakob.

„Spennan eykst mikið með hverjum deginum. Því nær sem dregur hugsar maður meira um þetta. Það er líka bara gott. Maður á að hugsa um þetta því þetta er eitthvað sem maður fer í gegnum bara einu sinni á ferlinum,“ sagði Jakob Örn Sigurðarson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×