Lífið

Risavatnsblaðra springur í rosalega hægri endursýningu

Birgir Olgeirsson skrifar
Við mælum með áhorfi í 4k.
Við mælum með áhorfi í 4k. Vísir/Youtube
Bresku æringjarnir sem hafa fært okkur stórkostleg myndbönd af matarregni og vatnsblöðruslag er mættir aftur með sitt besta verk til þessa.

Þeir bresku kalla sig The Slow Mo Guys  en hér klæðir einn þeirra sig í risavatnsblöðru sem fyllt er af vatni þangað til hún springur. Drengirnir tóku upp þúsund ramma á sekúndu til að festa þessa dýrð á filmu og er útkoman í hægri endursýningu með þeim mikilfenglegri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×