Lífið

Alvia Islandia með kandíflos á Prikinu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sykurfrauðið er allsráðandi í myndbandi Alviu.
Sykurfrauðið er allsráðandi í myndbandi Alviu. Vísir/sjáskot
Rappdrottningin Alvia Islandia hefur sent frá sér nýtt myndband við lag sitt Sugar Complex en það var frumsýnt á Prikinu þann 15. júlí.

Myndbandið er unnið af Lukku Sigurðardóttur, Anni Olafsdottur, Arnari Megaberg Sigurbjörnssyni og Michael Christofersson en þar má sjá Alviu bregða á leik í hoppukastala og gæða sér á kandíflosi á Prikinu.

Alvia hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi en hún hefur komið víða fram og er af mörgum talin koma sem ferskur andblær inn í íslensku tónlistarsenuna.

Þá gerðist hún svo fræ á dögunum að rappa á fimleikahesti með einum Wu-Tang meðlimanna, sjálfum Cappadonna, þegar gengið hans var hér á landi í tengslum við Secret Solstice

Myndband Alviu má sjá hér að neðan  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×