Lífið

Rihanna og Benzema enn að rugla saman reytum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hér má sjá þau Benzema og Rihönnu saman að snæðingi í New York í júní.
Hér má sjá þau Benzema og Rihönnu saman að snæðingi í New York í júní. vísir/twitter
Vonbiðlar landsins þurfa að ganga áfram með grasið í skónum á eftir söngkonunni Rihönnu ef marka má fregnir þess efnis að hún og franska knattspyrnustjarnan Karim Benzema séu enn að rugla saman reitum.

Turtildúfurnar hafa verið bendlaðar við hvort annað síðan í fyrri hluta júnímánaðar eftir að sást til þeirra snæðandi saman árbít í New York eftir langa nótt úti á galeiðunni.

Þau Benzema og Rihanna fara víst hægt í sakirnar og njóta samverunnar hvort með öðru. Þau eru sögð bera mikla virðingu fyrir þéttri dagskrá hjá hinu og sýni því mikinn skilning að það geti verið tímafrekt að vera fótboltamaður í fremstu röð og einn vinsælasti tónlistarmaður heims.

E! greinir þannig frá því að þau séu einnig miklar aðdáendur hvors annars í opinbera lífinu. Rihanna dáist þannig að þeim metnaði sem Benzema hefur fyrir starfi sínu og styðja þau við hvort annað með daglegum símhringingum og smáskilaboðum þegar þau njóta ekki samvista.

Vinir söngkonunnar eru þá einnig sagðir leggja blessun sína yfir ástarumleitanir þess franska en þau tvö hafa forðast það að ræða meinta samband þeirra sem heitan eldinn og hafa lítið vilja staðfesta í þeim efnum.

Það er bara að vona að samband þeirra reynist farsælla en því sem Rihanna hefur áður fengið að kynnast en eins og frægt er orðið gekk fyrrverandi kærasti hennar, söngvarinn Chris Brown, harkalega í skrokk á henni svo á sá.

Benzema hefur þó ekki óflekkað mannorð í ástarmálunum en fótboltamaðurinn var árið 2010 dæmdur fyrir vændiskaup frá stúlku undir lögaldri ásamt félögum sínum í franska landsliðinu.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×