Lífið

Flaug til Rúmeníu til að láta draum sex ára drengs með heilaæxli rætast

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi stund hefur líklega verið ógleymanleg fyrir Alvin.
Þessi stund hefur líklega verið ógleymanleg fyrir Alvin.
Alvin, sex ára drengur frá Rúmeníu sem er með heilaæxli, átti þá ósk heitasta að hitta Íþróttaálfinn.

Magnús Scheving ákvað því að klæðast búningnum í síðasta skipti og ferðaðist alla leið til Rúmeníu til að hitta drenginn.

„Það að Maggi skuli hafa gert það og að hann hafi náð að skapa karaktera sem börn allstaðar að úr heiminum lita til og horfa á sem fyrirmynd sem gefur þeim von á erfiðum tímum finnst mér ekki bara ótrúlegt afrek heldur lætur mig elska hann meira,“ skrifa Hrefna Björk Sverrisdóttir, kærasta, Magnúsar í stöðufærslu á Facebook.

Magnús fór út fyrir Make a Wish foundation og gaf drengnum hans heitustu ósk. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×