Linda P. segir örlagaríka blómvendi hafa orðið banabita Baðhússins Stefán Árni Pálsson skrifar 6. ágúst 2015 14:34 Linda P. opnar sig í nýju viðtali við MAN. „
Fyrst var ætlunin að opna fyrir jólin 2014 enda var ég búin að missa húsnæðið í Brautarholtinu og flutti þangað 10. desember. Ég hafði fengið loforð um að við gætum opnað fyrir jólin en bygging húsnæðisins hafði þá tekið nokkra mánuði,“ segir Linda Pétursdóttir, í samtali við tímaritið MAN en hún hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum hér á landi undanfarna tvo áratugi. Linda vann keppnina Miss World aðeins 18 ára gömul og síðan þá hefur hún verið þjóðareign. Í viðtalinu fer hún yfir árin sem hún rak Baðhúsið, heilsulind fyrir konur, og hvernig sá rekstur hafi verið eyðilagður af yfirmönnum fasteignafélagsins Regins. Linda segir að persónulegar ástæður hafi legið þar að baki og þáverandi aðstoðarkona forstjórans hafi snúist gegn sér þegar hún hafi fengið 14 blómvendi frá forstjóranum senda á Valentínusardaginn. Eftir það hafi erfileikar komið upp og að hún hafi á endanum verið hrakin á brott.Sjá einnig: Baðhúsið lokar: Linda Pé gefst upp á rekstrinum Hún segir Baðhúsið hafa orðið fyrir miklum skaða þegar áætlanir um framkvæmdir á nýju Baðhúsi í Smáralind stóðust ekki. Linda segist hafa farið fram á það við fasteignafélagið Reginn að það myndi fella niður hluta af leigunni til að mæta þessum skaða að einhverju leyti.Sjá einnig:Linda Pé svarar fyrir sig „Þær samningaviðræður stóðu lengi yfir, gengu vel fyrst og ég var með gott fólk með í þeim. Reginn vildi samt aldrei viðurkenna vanefndir, þó þær blöstu við öllum, en þau vildu eignast meirihluta í fyrirtækinu mínu gegn því að lækka leiguna. Þannig reyndu þau raun fjandsamlega yfirtöku,“ segir Linda sem ákvað að lokum að loka Baðhúsinu og að sú ákvörðun hafi verið gríðarlega erfið.Helgi Gunnarsson, forstjóri Regins, og Linda P.„Það voru gríðarlega þung skref og mikil sorg að ákveða að loka Baðhúsinu og kalla til starfsmannafundar þann 10. desember 2014 og tilkynna fólkinu mínu að það hefði ekki vinnu lengur. Það var sárt að horfa upp a sorgina sem fólkið, sem hafði unnið hjá mér í fjölda ár, upplifði.“ Sjá einnig:Reginn segist hafa staðið við sína samninga við Lindu Pé Hún segir samningaviðræður við Reginn hafa gengið ágætlega en það hafi breyst skyndilega þegar hún fékk óvænta blómasendingu þann 14. febrúar 2014, á sjálfan Valentínusardaginn. „Starfsmaður minn kemur inn á skrifstofu til mín og tilkynnir mér að það sé komin blómasending og ég sé sendilinn koma með innkaupakörfur fullar af blómvöndum og hélt í fyrstu að verið væri að ganga í öll fyrirtæki hússins með blómvendi. En svo kom í ljós að allir 14 vendirnir voru til mín frá forstjóranum með hamingjuóskum með opnunina. Daginn eftir gerði aðstoðarkona og hægri hönd forstjórans sér af einhverjum ástæðum leið inn í Baðhúsið og þegar hún spyr að gamni hvort ég hafi verið að opna blómabúð svara ég að það hafi nú verið þau sem sendu mér alla þessa vendi og þakkaði kærlega fyrir. Þá sá ég að það kom á hana,“ segir Linda og í kjölfarið af þessu atvikið hafi samningsviljinn þeirra megin horfið. Linda segir að fólk hafi upplifað að hún virtist stjórna meira í fyrirtækinu en sjálfur forstjórinn. Skömmu síðar hafi það verið gert opinbert að forstjórinn og aðstoðarkonan voru orðin par. „Það var ekkert á milli mín og forstjórans og ég var ekkert inni í þeirra ástarmálum enda kom það mér ekkert við.“ Samningurinn sem Linda gerði við Reginn fasteignafélag hljóðaði upp á alls 450 milljónir. Helgi Gunnarsson er forstjóri félagsins.
Mest lesið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Lífið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Kim vandræðaleg á tónleikum með nýrri eiginkonu Kanye Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Lífið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið Menning Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Lífið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Lífið Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Lífið Fleiri fréttir Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Sjá meira