Innlent

„Ég vil þakka ykkur fyrir það sem þið gerðuð fyrir mig. Ég mun aldrei gleyma því.“

Birgir Olgeirsson skrifar
Björgunarsveitarfólkið okkar fær toppeinkunn frá erlendum ferðamanni.
Björgunarsveitarfólkið okkar fær toppeinkunn frá erlendum ferðamanni. Vísir/Landsbjörg
Erlendur ferðamaður fer fögrum orðum um björgunarsveitarfólkið okkar. Slysavarnafélagið Landsbjörg birti bréf á Facebook-síðu sinni sem ferðamaðurinn sendi björgunarsveitinni Suðurnes fyrir skemmstu en þar segir hann frá hjólreiðaslysi sem hann lenti í nærri Landmannalaugum á Fjallabaksleið 6. ágúst síðastliðinn.

„Ég vildi láta ykkur vita hve þakklátur ég er. Ég hafði heyrt af björgunarsveitum sem hjálpuðu ferðamönnum en mér datt aldrei til hugar að ég yrði einn þeirra sem þyrfti á hjálp að halda,“ segir ferðamaðurinn.

Sár kvalinn

Hann segir leiðsögumann sinn hafa kallað eftir hjálp því flytja þurfti ferðamanninn niður fjall. „Ég var sár kvalinn og með óráði en áttaði mig þó á aðstæðum, og ég verð að segja að mér finnst mikið til ykkar starfs koma: Allt sem þið gerðuð var fagmannlegt, hratt og öruggt. Ég var öruggur og í góðum höndum.“

„Ekki eins og einhver kjánalegur ferðamaður“

Hann nefnir sérstaklega að hann var hrifnastur af því að hafa verið meðhöndlaður eins og manneskja. „En ekki eins og einhver kjánalegur ferðamaður,“ segir hann og þakkar fyrir að enginn af björgunarsveitarmönnum hafi ákveðið að klippa íslenska ullarpeysu hans í sundur til að geta hlúð að honum.

Björgunarsveitarmaður hélt í höndina á honum

„Það kann að hljóma léttvægt í ykkar eyrum en er mér mjög mikilvægt,“ segir ferðamaðurinn. Hann segir björgunarsveitarmann hafa haldið í höndina á honum á leið til byggða og þótti honum afar vænta um það. „Ég veit ekki hver það var en það var gott, svo traustvekjandi.“

Hann segist hafa verið fluttur á sjúkrahús á Selfossi þar sem var einnig hugsað vel um hann. Hann fékk að fara af sjúkrahúsinu daginn eftir með poka fullan af verkjalyfjum og án allra alvarlegra meiðsla.

„Ég vil þakka ykkur fyrir það sem þið gerðuð fyrir mig. Ég mun aldrei gleyma því.“

Skil þetta bara eftir hér :)"Last week on Thursday 6th, I had a riding accident near Landmannalaugar. It happend...

Posted by Slysavarnafélagið Landsbjörg on Friday, August 14, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×