Að lokinni endurskoðun verður tillaga að endurskoðuðum starfsleyfisskilyrðum auglýst á vefsvæði Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í fjórar vikur.
Foreldrar reiðir og áhyggjufullir
Matthías Kormáksson formaður foreldrafélags leikskólans Sólborgar, sem er í nágrenni við bálstofuna, skrifaði grein um málið á Vísi í gær. Þar kom fram að foreldrar barna á leikskólanum Sólborg í Öskjuhlíð haf miklar áhyggjur af reyk frá bálstofunni. Reykinn leggi reglulega yfir skólalóðina. Bálstofan í Fossvogi er sú elsta í Evrópu. Hún hefur verið starfrækt frá 1948.
„Síðustu mánuði höfum við foreldrar barna í leikskólanum Sólborg, sem er staðsettur í bakgarði Bálstofunnar, sent inn tugi kvartana til Heilbrigðiseftirlitsins með ljósmyndum og myndböndum sem undirstrika kjarna málsins. Bálstofan er úr sér gengin og hefur fengið að stunda mengunarvaldandi starfsemi sína óáreitt án þess að standast kröfur Heilbrigðiseftirlitsins um viðeigandi mengunarvarnir, svo árum skiptir,“ sagði Matthías í grein sinni.
Sjá einnig: Við þurfum að tala um Bálstofuna
Þar gagnrýnir hann svör stjórnenda harðlega og spyr af hverju ekki sé búið að undirbúa byggingu nýrrar bálstofu. Það hafi legið fyrir frá 2022 að bálstofan gæti ekki uppfyllst staðla heilbrigðiseftirlits
„Bálstofan í Fossvogi er úrelt og ónýt. Það er kominn tími til að horfast í augu við það. Heilbrigðiseftirlitið er búið að leyfa Bálstofunni að starfa undir skilyrðum sem uppfylla ekki kröfur um mengunarvarnir til fjölda ára. Lausnin er augljós og framkvæmanleg strax í dag. Hvar er tregðan? Liggur hún hjá Bálstofunni? Eða Heilbrigðiseftirlitinu? Eða er kannski kominn tími til þess að stjórnvöld axli ábyrgð í þessu máli og leysi það í eitt skipti fyrir öll?“ spurði Matthías að lokum.