Formúla 1

Vergne: Ég á góða möguleika á sæti hjá Haas

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Vergne er varaökumaður Ferrari. Hann dreymir um endurkomu í Formúlu 1.
Vergne er varaökumaður Ferrari. Hann dreymir um endurkomu í Formúlu 1. Vísir/Getty
Jean-Eric Vergne telur sig eiga góða möguleika á að tryggja sér sæti hjá Haas liðinu í Formúlu 1 á næsta tímabili.

Haas liðið þreytir frumraun sína í Formúlu 1 á næsta ári. Vergne telur líklegt að hann snúi aftur til keppni í Formúlu 1 með liðinu. Hann ekur nú í Formúla E, rafbílakappakstrinum.

Vergne ók fyrir Toro Rosso liðið á milli 2012 og 2014, svo tapaði hann sæti sínu. Hann fékk ekki tækifæri hjá Red Bull líkt og fyrrum liðsfélagi hans, Daniel Ricciardo. Ricciardo hefur nú unnið þrjár keppnir.

Vergne er með samning við DS Virgin liðið í Formúlu E á næsta ári en vonast til að losna undan honum, vilji Haas fá hann.

„Við erum nokkrir ökumenn sem komum til greina fyrir sætin tvö. Við getum orðað það þannig að það sé ansi líklegt að ég endi með annað þeirra,“ sagði Vergne í samtali við Motorsport.

„Ef tækifæri í Formúlu 1 kemur til mín þarf að koma í ljós hvernig leysist úr því. Ég vona að ég þurfi að glíma við þann vanda, það er hægt að hafa verri vandamál!,“ bætti Vergne við.

Vergne er varaökumaður Ferrari og vonar að sú staða hjálpi honum að lenda í sæti hjá Haas.

„Núna einbeiti ég mé að Formúlu E, ásamt starfi mínu með Ferrari, sem ég vona auðvitað að hjálpi mér til að komast að hjá Haas,“ sagði Vergne að lokum.


Tengdar fréttir

Max Verstappen sá yngsti frá upphafi

Max Verstappen mun taka þátt í æfingu á föstudaginn fyrir japanska kappaksturinn. Hann verður þar með yngsti ökumaður sem hefur tekið þátt í keppnishelgi. En hann verður 17 ára í dag.

Sauber staðfestir ökumenn snemma

Sauber ætlar að halda báðum ökumönnum sínum á næsta ári. Liðið hefur tilkynnt þetta til að forðast óþarfa slúður og kjaftasögur.

Mercedes þarf að vara sig á Ferrari

Liðsstjóri Mercedes, Toto Wolff hefur varað lið sitt við að slaka of mikið á. Wolff vill ekki hleypa Sebastian Vettel og Ferrari nær í titilbaráttunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×