Sport

Aníta í sterkum riðli í undanrásunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aníta og Jenny Meadows eigast aftur við í nótt.
Aníta og Jenny Meadows eigast aftur við í nótt. vísir/getty
Aníta Hinriksdóttir keppir í nótt í 800 metra hlaupi á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Peking í Kína. Þetta er fyrsta heimsmeistaramót hinnar 19 ára gömlu Anítu í fullorðinsflokki á ferlinum.

Aníta er í sjötta og síðasta riðlinum sem þykir mjög sterkur. Þrjár fyrstu í hverjum riðli fara áfram í undanúrslit auk þeirra sex sem eru með besta tímann þar fyrir utan.

Aníta hefur keppt við alla hina sex keppendurna í sínum riðli áður. Hún keppti m.a. við Jenny Meadows frá Bretlandi og Selinu Büchel frá Sviss á EM innanhúss í Prag í mars á þessu ári en Büchel varð hlutskörpust þar.

Meadows er reyndust af þeim sjö hlaupurum sem eru í riðli Anítu en þessi 34 ára kempa hefur komist á pall á EM og HM, bæði innan- og utanhúss.

Büchel hefur hlaupið hraðast í ár af þeim konum sem Aníta mætir í nótt.vísir/getty
Besti tími Meadows er 1:57,93 mínútur en hin marókkóska Malika Akkaoui á besta tíma þeirra keppenda sem skipa riðil sex, eða 1:57,64. Büchel á hins vegar besta tíma þessara sjö keppenda í ár, eða 1:57,95.

Besti tími Anítu í greininni er 2:00,49 en hún náði þeim tíma á móti í Mannheim í lok júní 2013.

Besti tími Anítu í ár er 2:01,15 en hún náði honum á móti í Nimone í Belgíu 1. ágúst síðastliðinn.

Hlaupið í riðli Anítu hefst um klukkan þrjú í nótt að íslenskum tíma.

Þessar hlaupa í riðli 6:                             Besti tími í ár - Besti tími

Selina Büchel (Sviss)                                      1:57,95 - 1:57,95

Anastasiia Tkachuk (Úkraína)                           2:00,21 - 2:00,21

Melissa Bishop (Kanada)                                 1:59,52 - 1:59,52

Margaret Nyairera Wambui (Kenýa)                   2:01,32 - 2:00,49

Malika Akkaoui (Marokkó)                                2:00,69 - 1:57,64

Jennifer Meadows (Bretland)                            1:59,21 - 1:57,93

Aníta Hinriksdóttir (Ísland)                              2:01,15 - 2:00,49




Fleiri fréttir

Sjá meira


×