
Flóttamannasprengjan - á ekki að ræða orsakirnar?
Oft er gefið í skyn að þetta séu einkum efnahagslegir flóttamenn í leit að betri lífskjörum. Rangt. Langflestir flóttamenn nútímans flýja STRÍÐSÁSTAND. Skýrsla Flóttamannastofnunar SÞ um flóttamannastrauminn til Evrópu hefst svo: „Mikill meirihluti þeirra 130 þúsunda sem komu yfir Miðjarðarhaf til Evrópu sex fyrstu mánuði ársins 2015 flýja stríð, átök og ofsóknir.“
SÝRLAND er stærsta uppspretta flóttamanna á heimsvísu með 4 milljónir flóttamanna, og 7 milljónir á flótta innan landsins sjálfs. Ástæðan? Jú, stríðið sem geisað hefur í landinu frá 2011, stríð Vesturveldanna og helstu bandamanna þeirra í Miðausturlöndum gegn Sýrlandi. Áður en það hófst var einfaldlega enginn flóttamannastraumurfrá Sýrlandi.
Stríðið hófst 2011 samhliða lokakafla Líbíustríðsins. Eins og í Líbíu hefur uppreisnin í Sýrlandi frá upphafi verið mönnuð af harðlínu-jíhadistum en studd, fjármögnuð og vopnuð af Vesturlöndum með bandamönnum, Persaflóaríkjunum, Tyrklandi ... Staðgengilsstríð. Árið 2012 viðurkenndu USA og ESB bandalag uppreisnarhópa sem réttmætan fulltrúa sýrlensku þjóðarinnar og beita sér fyrir „valdaskiptum“ í landinu. Sú afstaða var studd bæði af Össuri Skarphéðinssyni og Gunnari Braga Sveinssyni. Þetta er sem sagt okkar stríð.
Næststærsta uppspretta flóttamanna í heiminum í dag er AFGAN ISTAN.Flóttamenn þaðan eru 2,5 milljónir. En Evrópa verður minna vör við þá af því þeir eru langmest í flóttamannabúðum í Pakistan og Íran.
Ástæður flóttans? Stríð. Stríð sem rekið er af systkinunum USA og ESB allt frá 2001. Þið þekkið formúluna USA + ESB = NATO. Ísland hefur stutt þann stríðsrekstur frá upphafi undir vinstri jafnt sem hægri stjórnum. Okkar stríð.
Svo koma aðrar stóruppsprettur flóttamannastraums í röðum, lönd í stríði. Nefnum nokkrar, ekki í réttri fjöldaröð, enda fjöldi mismunandi eftir því hvernig talið er. Óeðlilegt er að bera saman tölur um flóttamenn frá t.d. Líbíu með 6 milljóna þjóð og Bangladess með 160 milljónir.
LÍBÍA.
Talið er að um 2 milljónir hafi flúið Líbíu til Túnis á undanförnum árum, sem væri nærri þriðjungur íbúanna! Og nærri milljón sé þar nú. Um hálf miljón bíður í örvæntingu í Líbíu eftir að komast á manndrápsfleytum til Evrópu. Orsök? Stríð.
„Uppreisnin“ í Líbíu 2011 var einkum mönnuð af jíhadistum en úrslitum réð lofthernaður NATO til stuðnings við jíhadistana. Bandaríkin, Frakkland og Bretland lögðu mest af mörkum en t.d. Danmörk og Noregur voru í forystu í byrjun lofthernaðarins. Stríðið eyðilagði Líbíu sem ríki. Stuðningur íslensku vinstristjórnarinnar við stríð NATO var fumlaus og án skilyrða.
ÍRAK átti hálfa milljón flóttamanna í september í fyrra og þeim fer nú aftur fjölgandi með nýju stríði. Bandaríkin og Vesturlönd bera ábyrgð á hörmungum þess lands með Ísland í hópi „hinna viljugu“ í árásarstríðinu frá 2003. Með fyrirbærinu ISIS hafa Vesturveldin skapað sér yfirvarp til
nýrra íhlutana í Írak. Okkar stríð.
SÓMALÍA.
Flóttamenn þaðan eru yfir ein milljón. Hungursneyðin og óöryggið í landinu eru mannanna verk. Ríkjandi hnattvæðingarstefna og AGS brutu niður matvælaframleiðslu í Sómalíu á 9. áratugnum.
Hungursneyðin þar tengist að öðru leyti ófriði. Bandaríkin héldu þar úti „friðargæsluher“ á árunum 1993-94 og landið hefur auk þess mátt þola innrásir frá helstu bandamönnum Bandaríkjanna á svæðinu, Eþíópíu og Kenía.
Síðustu árin hefur ófriðurinn tengst hernaði Al-Shahab, samtaka af meiði Al-Kaída, sem kostuð eru af Sádi-Arabíu og studd leynilega af vestrænum leyniþjónustum. Ógæfa Sómalíu er legan við mynni Rauða hafsins, sem er strategísk siglingaleið, meðal annars leiðin til og frá Persaflóa.
JEMEN.
Hinum megin Rauða hafsins er Jemen og býr við sömu ógæfu. Í lok júlí sl. hófst stríðið sem svar við byltingu í Jemen sem Sádi-Arabía og Bandaríkin voru bæði jafn ósátt við. Olíufurstarnir tóku að sér að sprengja landið í tætlur og „koma á stöðugleika“ þar!
Tvö hundruð flugvéla floti heldur úti stöðugu sprengjuregni yfir borgir og bæi í Jemen. Sádi-Arabía hefur verið skjólstæðingur Bandaríkjanna í 70 ár. Reliefweb skrifar: „21,1 milljón manns í Jemen þarf neyðarhjálp strax. 1,3 milljónir eru á flótta innan lands, 3.800 dauðir og 18 þúsund særðir.“
Bandaríkin, Bretland og Ísrael styðja innrásina opið, aðrir, s.s. Ísland, samþykkja hana með þögninni.Flóttamannavandinn er birtingarmynd og afleiðing hernaðarútrásar vestrænnar heimsvaldastefnu. Sú útrás bætist við efnahagskerfi heimsvaldastefnunnar sem heldur þjóðum í fátækt og viðheldur misskiptingu
auðs og valds.
Og nú koma hrelldir og bjargarlausir þegnar fórnarlandanna og knýja dyra í heimsvaldalöndum, meðal annars Evrópu, og beiðast ásjár. Að fjalla um flóttamannavandann án þess að nefna orsakir hans er álíka fáránlegt og að ræða um fangabúðavandann í Evrópu 1939-45 án þess að nefna styrjöld eða nasisma.
Skoðun

Sérhagsmunir Viðskiptablaðsins
Högni Elfar Gylfason skrifar

Fáni okkar allra...
Eva Þorsteinsdóttir skrifar

Átökin um áminningarskylduna – stutt upprifjun
Óli Jón Jónsson skrifar

Hvernig kennum við gagnrýna hugsun? – Umræða sem þarf að halda áfram
Guðmundur Björnsson skrifar

Föstum saman, Ramadan og langafasta
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Auðhumla í Hamraborg
Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar

Magnús Karl er einstakur kennari og verður afburða rektor
Kristín Heimisdóttir skrifar

Mannlegi rektorinn Silja Bára
Arnar Pálsson skrifar

Þegar Halla Gunnarsdóttir lét Kevin Spacey heyra það
Drífa Snædal skrifar

Íslenskar löggæslustofnanir sem lögmæt skotmörk
Bjarni Már Magnússon skrifar

Ó-frjósemi eða val
Matthildur Björnsdóttir skrifar

Er íslenska geðheilbrigðiskerfið of strangt þegar kemur að nauðungarvistun?
Arna Ósk Óskarsdóttir skrifar

Heimilisofbeldi – aðgerðir í þágu þolenda
Alma D. Möller ,Drífa Jónasdóttir skrifar

Þegar nemendur skilja ekki grundvallarhugtök: Hvað segir það um kennsluna?
Guðmundur Björnsson skrifar

Við kjósum Kolbrúnu!
Rannveig Klara Guðmundsdóttir,Gunnar Ásgrímsson skrifar

Geðheilbrigði snertir okkur öll
Sandra B. Franks skrifar

Hin nýja heimsmynd Trumps, Putins og Jinpings
Guðmundur Einarsson skrifar

Virðismatskerfi í þágu launajafnréttis
Helga Björg Olgu- Ragnarsdóttir skrifar

Konur láta lífið og karlar fá knús
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

VR Chairman Elections Have Begun – Your Vote Matters!
Þorsteinn Skúli Sveinsson skrifar

Kosningar í VR
Ólafur Reimar Gunnarsson skrifar

Kynjajafnrétti er mannanna verk
Stella Samúelsdóttir skrifar

Álfar og huldufólk styðja umhverfisvernd
Bryndís Fjóla Pétursdóttir skrifar

Baráttan heldur áfram!
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Jafnréttisparadís?
Guðrún Karls Helgudóttir skrifar

Fíllinn í fjölmiðlastofu Þórðar Snæs
Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar

Björn Þorsteinsson smellpassar í starf rektors
Haraldur Ólafsson skrifar

Opið ákall til þjóðarinnar – frá ótta til bjartsýni á gervigreindaröld
Sigvaldi Einarsson skrifar

Þetta er ekki tæknimál - þetta er lífsspursmál
Ingvar Hjálmarsson,Sigríður Mogensen skrifar