Hamley´s hafa opnað yfir 50 verslanir á sjö árum ingvar haraldsson skrifar 16. september 2015 14:00 Guðjón Reynisson stýrði Hamley's í gegnum ólgusjó hrunáranna. Félagið hagnaðist árið 2010 í fyrsta sinn frá árinu 2004. Síðan þá hefur hagnaðurinn aukist jafnt og þétt að sögn Guðjóns. hamley´s
Elsta leikfangaverslun heims, Hamleys, hefur vaxið á undraverðum hraða síðustu ár. Hamleys opnaði sína fyrstu verslun utan Bretlandseyja í Jórdaníu í júní árið 2008 og síðan þá hafa yfir 50 Hamleys-verslanir verið opnaðar í þremur heimsálfum, þar af 47 utan Bretlandseyja. Vöxturinn hefur átt sér stað undir stjórn Guðjóns Reynissonar, sem tók við sem forstjóri í maí árið 2008. Þá var Hamleys í eigu Baugs og Fons en Guðjón hafði áður verið framkvæmdastjóri 10-11. Guðjón segir heim smásöluverslunar vera að breytast hratt og því hafi Hamleys líkt og aðrir þurft að bregðast við. „Það hafa orðið gríðarlega miklar breytingar á verslunargeiranum í heild sinni með tilkomu internetverslunarinnar. Smásöluverslun hefur gengið í gegnum miklar breytingar sem enn standa yfir.“Guðjón segir börn alls ekki leika sér minna með leikföng þrátt fyrir auknar vinsældir tölvuleikja. Eftirspurn eftir leikföngum aukist jafnt og þétt.hamley’sHamleys verði að skera sig úr í þessum breytta heimi. „Okkar samkeppnisforskot byggist á því sem þú upplifir í verslunum okkar. Við leggjum mikla vinnu í að búa til spennandi umhverfi þar sem fjölskyldan getur komið saman og getur skapað minningar og skemmt sér. Internetið býður ekki upp á þá möguleika, það fókuserar meira á aðgengi að breiðu vöruúrvali á sem lægstu verði. Við notum internetið í kringum okkar samfélagsmiðlastarfsemi og við erum með vefverslun en sala í gegnum vefinn er tiltölulega lítill hluti af okkar heildarveltu í Bretlandi og enn þá minni þegar kemur að öðrum mörkuðum.“ Hamleys hafi þó hug að frekari sókn í netheimum á næstu árum.Leikfangasala að aukast „Smásöluverslun er að aukast jafnt og þétt og internetið er orðið mjög samofið verslunarrekstrinum eins og hann var áður, þannig keppa þessir tveir miðlar ekki endilega hvor við annan. Verslunarupplifunin er orðin samofin, fólk notar snjallsímana sína sem hluta af því að fara í verslunina.“ Guðjón segir Bretland vera leiðandi á heimsvísu á þessu sviði og mun framar en t.d. Bandaríkin. „Eitt er ekki að ryðja öðru burt en það eru að verða miklar breytingar á því hvaða fyrirtæki eru að styrkjast og hver eru að veikjast,“ segir hann. Guðjón segir þá staðreynd að börn eyði meiri tíma í tölvuleikjum en áður ekki hafa slæm áhrif á Hamleys. „Vöxtur í sölu leikfanga hefur verið stöðugur á síðustu árum. Vefvæðing okkar í nútímanum þýðir ekki að börn leiki sér minna en áður, það er meira ef eitthvað er,“ segir hann.Allt að 15 nýjar verslanir fyrir áramót Viðsnúningurinn hófst í rekstri Hamleys árið 2009 og félagið skilaði hagnaði árið 2010 sem var í fyrsta sinn frá árinu 2004. Guðjón segir hagnaðinn hafa aukist jafnt og þétt síðan. Nú verður um helmingur tekna Hamleys til utan Bretlands. Verslanir undir merkjum Hamleys utan Bretlandseyja eru reknar með svokölluðu sérleyfisfyrirkomulagi. Frá því fyrsta sérleyfisverslunin var opnuð árið 2008 hafa verslanir verið opnaðar í Skandinavíu, Mið-Austurlöndum, á Indlandi, í Suður-Afríku, Rússlandi og Suðaustur-Asíu. Leikfangarisinn hyggur á frekari vöxt á næstunni. „Við erum með mikil plön. Við munum opna á milli 12-15 sérleyfisverslanir fyrir lok þessa árs,“ segi Guðjón. Þar á meðal verða fyrstu verslanir Hamleys í Mexíkó, Víetnam og Finnlandi. Guðjón segir að Hamleys reyni að taka mið af mismunandi aðstæðum í hverju landi fyrir sig. „En þú mátt ekki breyta vörumerkinu of mikið. „Ég hef stundum verið spurður að því hver aðlögunin sé í prósentum og ég myndi giska á milli 10 og 15 prósent. Aðlögunin er fyrst og fremst í vöruvalinu en ekki hönnuninni á versluninni og upplifuninni fyrir viðskiptavininn, það verður alls staðar að vera það sama. Börn og fjölskyldur þeirra eru í grunninn eins alls staðar í heiminum, sömu hlutirnir höfða til þeirra hvort sem þau eru í Suður-Kóreu, Víetnam, Mexíkó eða Suður-Afríku.“Hamley´s verslunum hefur fjölgað hratt síðustu ár og mun fjölga áfram.fréttablaðiðStefna ekki á Íslandsmarkað Ísland er ekki inni í plönum leikfangarisans að svo stöddu. „Það hefur oft komið til tals en við erum að einbeita okkur að stærri mörkuðum. Auðvitað hefði ég mjög gaman af því en það er ekki að fara að gerast á næstunni,“ segir Guðjón. Hamleys hefur hins vegar mikinn áhuga á Bandaríkjamarkaði þar sem fyrirtækið hefur enn ekki opnað verslun. „Við erum að skoða þann markað mjög gaumgæfilega og við höldum að þar séu spennandi tækifæri. Við erum að vinna að því að opna verslanir þar en það er ekkert fast í hendi.“ Eftir hrunið eignaðist slitabú Landsbankans og Kaupþing í Lúxemborg Hamleys. Franska leikfangakeðjan Ludendo keypti Hamleys árið 2012. Í kjölfar vaxtar Hamleys og bættrar afkomu hefur áhugi fjárfesta aukist. Fyrir nokkrum vikum bárust fregnir af því að félag frá Mið-Austurlöndum sem á einn helsta keppinaut Hamleys, Toy Store, hefði hug á því að kaupa Hamleys. Guðjón vildi lítið gefa upp um þessar þreifingar. Hrunárin kenndu góða siði Vorið 2009 voru þáverandi eigendur Hamleys, Baugur og Fons, teknir til gjaldþrotaskipta nokkrum mánuðum eftir að íslenska bankakerfið féll. Guðjón segir margt hafa lærst í hruninu. „Þetta var auðvitað mjög sérstakur tími, ég kem hingað inn í maí 2008 og þarna um haustið í október þá byrjar að hrikta í stoðunum. Það sem var í rauninni með okkur í Hamleys var að við vorum algerlega sjálfstætt fyrirtæki en í eigu Baugs og Fons á þeim tíma. Og þegar eigendur okkar lentu í erfiðleikum hafði það í sjálfu sér ekki bein slæm áhrif á okkar félag. Þó voru ákveðnir hlutir sem þyngdu hjá okkur reksturinn í nokkurn tíma því birgjar og aðrir skildu ekki alveg hver okkar staða var. Að mörgu leyti má segja um þetta tímabil þegar maður lítur til baka að það hafi haft jákvæð áhrif frekar en hitt því þetta kenndi okkur góða siði við rekstur félagsins; að eyða ekki meiru en þú aflar og svo framvegis. Við þurftum að treysta á okkur sjálfa svo stefna okkar byggði á mjög lítilli þörf fyrir utanaðkomandi lánsfé,“ segir hann.
Mest lesið Varað við svörtum eldhúsáhöldum Neytendur Segir skilið við Grillmarkaðinn Viðskipti innlent Airbus vottuð með hreyflum sem knýja þotur Icelandair Viðskipti innlent „Þetta verður bara heiðarlegur bisness, ég nenni engu kjaftæði“ Viðskipti innlent Skipar í valnefndir til að meta umsækjendur um stjórnarsetu Viðskipti innlent Að taka því ekki persónulega hvernig týpa þinn yfirmaður er Atvinnulíf Metsætanýting í febrúar hjá Icelandair Viðskipti innlent Vill færa RÚV nær fyrirkomulaginu á Norðurlöndunum Viðskipti innlent Bein útsending: Iðnþing 2025 – Ísland á stóra sviðinu Viðskipti innlent Tilnefningar til Íslensku vefverðalaunanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Metsætanýting í febrúar hjá Icelandair Segir skilið við Grillmarkaðinn Skipar í valnefndir til að meta umsækjendur um stjórnarsetu Bein útsending: Iðnþing 2025 – Ísland á stóra sviðinu Airbus vottuð með hreyflum sem knýja þotur Icelandair Vill færa RÚV nær fyrirkomulaginu á Norðurlöndunum Grunnskólarnir pöntuðu fjögur þúsund pizzur Slæm staða einkarekinna fjölmiðla kom á óvart Árétta að uppsagnir geti verið liður í framkvæmd samruna Bein útsending: Magnast spennan – Orkuöryggi í breyttu umhverfi Tilnefningar til Íslensku vefverðalaunanna Norræni bankinn fjármagnar þrjú verkefni Heima Nýir eigendur endurreisa Snúruna Ráðinn yfirverkefnastjóri Colas Halldóra Fanney, Auður Erla og Sunna Ösp ráðnar til Samkaupa Starfsfólki fjölgar hjá RÚV en hríðfækkar í bransanum Eldrauður dagur í Kauphöllinni Bein útsending: Ársfundur Landsvirkjunar Stækka Smárabíó og bæta við þrettán veitingastöðum í Smáralind Gunnar tekur við af Hálfdáni hjá Örnu 64 sagt upp í þremur hópuppsögnum Baðlón og nýr veitingastaður Gísla Matt í Laugarási Sérfræðingur í gervigreind til KPMG Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri Fyrrverandi aðstoðarmaður skellir sér aftur í auglýsingarnar Ekkert verður af frekari loðnuvertíð Engin bráð hætta á „bíólausu Íslandi“ Skattar á áfengi hæstir á Íslandi Stefna á Coda stöð við Húsavík Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Sjá meira