Formúla 1

Marchionne: Ferrari verður alvöru ógn 2016

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Piero Ferrari og Sergio Marchionne ræða málin á Monza brautinni síðustu helgi.
Piero Ferrari og Sergio Marchionne ræða málin á Monza brautinni síðustu helgi. Vísir/Getty
Framkvæmdastjóri Ferrari, Sergio Marchionne segist viss um að Ferrari verið alvöru ógn við Mercedes liðið á næsta tímabili.

Ferrari er greinilega næst á eftir Mercedes í styrkleika eins og staðan er núna. Bilið þar á milli er þó enn nokkuð. Mercedes hefur unnið tíu keppnir í ár en Ferrari tvær.

„(Næsta ár) er allt annað, við höfum unnið að hönnun 2016 vélarinnar og bílsins í dágóðan tíma,“ sagði Marchionne við Sky Sports F1.

„2016 verður núllstilling fyrir okkur, við komum með alveg nýja hönnun á bílnum og vélinni og ég er þokkalega öruggur með að Ferrari verði aftur á toppnum sem alvöru keppinautur, í stað þess að vera eltihrellir,“ bætti Marchionne við.

Framkvæmdastjórinn kveðs hæstánægður með vinnu liðsstjórans Maurizio Arrivabene og liðsins í heild. Hann vill bara að stefnan sé áfram upp á við.

Ferrari hefur ekki unnið titil síðan liðið varð heimsmeistari bílasmiða 2008. Liðið hefur unnið 223 keppnir af þeim 900 sem það hefur tekið þátt í. Síðasti ökumannstitill sem kom til liðsins var þegar Kimi Raikkonen varð heimsmeistari 2007. Margir aðdáendur liðsins eru orðnir óþreyjufullir í biðinni eftir næsta titli.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Það helsta frá Monza

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark og svo stóð hugsanlega til að dæma hann úr leik. Kimi Raikkonen átti frábæra tímatöku en hvað svo?

Webber: Maldonado er ekki nógu góður fyrir F1

Mark Webber fyrrum ökumaður Red Bull liðsins í Formúlu 1 segir vissan hóp ökumanna sem nú aka í Formúlu 1 ekki nógu góða til að verðskulda sæti þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×