Viðskipti innlent

Vörugjöld á bílaleigur orsaka keðjuverkun

Sveinn Arnarsson skrifar
Bílaleigur munu draga saman seglin í kaupum á nýjum bílum á næsta ári nái fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fram að ganga.
Bílaleigur munu draga saman seglin í kaupum á nýjum bílum á næsta ári nái fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fram að ganga. vísir/gva
Gert er ráð fyrir að afnumin verði í tveimur skrefum sú ívilnun sem bílaleigur njóta í vörugjaldi af ökutækjum við innflutning. Er þetta hluti lagabreytinga sem munu fylgja fjárlagafrumvarpi Bjarna Benediktssonar. Ljóst þykir að þetta muni hafa mikil áhrif á kaup bílaleiga á nýjum bílum á næstu árum að mati Steingríms Birgissonar, forstjóra Bílaleigu Akureyrar. Bílaleigur hafa keypt helming allra nýrra bíla hér á landi frá hruni.

Steingrímur Birgisson
„Ég er gáttaður á framgöngu fjármálaráðherra í þessu máli. Það hefur ekkert samráð verið haft við okkur vegna þessara breytinga til að reyna að meta hvaða áhrif þetta mun hafa á kaup bílaleiga á nýjum bílum í framtíðinni,“ segir Steingrímur. „Það er alveg ljóst að með þessum breytingum munum við draga mjög úr kaupum á nýjum bifreiðum í flotann okkar sem mun hafa miklar afleiðingar í för með sér, bæði fyrir okkur, bílasölur og ferðaþjónustuna í heild sem atvinnugrein.“

Bílaleiga Akureyrar er stærsta bílaleiga landsins og er á fjórða þúsund bifreiða í flota hennar. Steingrímur segir þessar breytingar verða til þess að flotinn verði ekki endurnýjaður eins hratt, hver bíll verði keyrður lengra sem veldur því að bílarnir verða ekki eins öruggir fyrir ferðamenn. „Þetta er ekki til þess að efla ferðaþjónustuna sem atvinnugrein sem er ört vaxandi á Íslandi í dag. Í raun má segja að fjöldi fyrirtækja muni eiga í erfiðleikum. Hér eru um 170 starfandi bílaleigur og með þessum breytingum er verið að sparka okkur á haf út.“

Loftur Ágústsson
Loftur Ágústsson, markaðsstjóri BL, segir mjög líklegt að boðaðar breytingar muni hafa áhrif á rekstur fyrirtækisins í framtíðinni. BL selji mikið magn nýrra bíla til bílaleiga ár hvert. „Við þurfum auðvitað að reikna með þessu í okkar skipulagi og þetta mun vissulega hafa áhrif á okkur, það er engin spurning. Hins vegar er enginn í stakk búinn til að meta það hversu mikið það verður. En við munum þurfa að taka með í reikninginn að sala til bílaleiga mun minnka við þessar breytingar,“ segir Loftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×