Erlent

Stúlkubarn fannst í pappakassa

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Stúlkan fannst í þessum kassa.
Stúlkan fannst í þessum kassa.
Stúlku­barn fannst í pappa­kassa fyr­ir utan hús í bæn­um Cor­by í Nort­hampt­ons­hire í Bretlandi í gær. Talið er að stúlk­an sé eins til fjögurra vikna göm­ul. Frá þessu er greinir Sky News.

Veg­far­andi fann barnið sem var vafið inn í blátt teppi í pappakassanum.

Talsmaður lögreglunnar í North­amptonshire seg­ir að stúlk­an virðist við góða heilsu. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem hlúð var að henni.

Lög­regl­an leit­ar vitna og leggur áherslu á að finna móður barnsins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×