Sport

Slasaði starfsmann með lélegu kasti

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kaepernick i leiknum umtalaða.
Kaepernick i leiknum umtalaða. vísir/getty
Leikstjórnandi San Francisco 49ers, Colin Kaepernick, náði nýjum lægðum síðustu nótt.

Hann gat lítið í leik 49ers og Seattle Seahawks sem Sjóhaukarnir unnu örugglega, 20-3.

Köstin hjá Kaepernick verða lélegri með hverju árinu þó svo hann geti vissulega enn kastað fast. Mjög fast.

Ein sendinga hans í gær fór nokkuð út fyrir völlinn og beint í andlitið á starfsmanni 49ers. Kastið var fast og svo fast að sjúkraliðar 49ers urðu að gera að sárum starfsmannsins.

Kastið má sjá hér.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×