Körfubolti

Þórsarar örugglega áfram í 16-liða úrslit Powerade-bikarsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ragnar var með 21 stig og níu fráköst í liði Þórs í dag.
Ragnar var með 21 stig og níu fráköst í liði Þórs í dag. vísir/valli
Lið Þórs Þorlákshafnar er komið í 16-liða úrslit Powerade-bikarsins í körfubolta eftir stórsigur, 67-121, á ÍG, Íþróttafélagi Grindavíkur.

Þórsarar áttu ekki í miklum vandræðum í Mustad-höllinni í Grindavík í dag og skoruðu að vild.

Vance Hall var stigahæstur í liði Þórs með 30 stig en Ragnar Nathanaelsson kom næstur með 21 stig og níu fráköst. Allir níu leikmenn Þórs sem tóku þátt í leiknum skoruðu sex stig eða meira.

Helgi Már Helgason skoraði 16 stig fyrir ÍG og Haraldur Jón Jóhannesson bætti 11 stigum við.

Þá vann Ármann 11 stiga sigur, 83-94, á Íþróttafélagi Breiðholts í Seljaskóla.

Snorri Páll Sigurðsson var stigahæstur í liði Ármanns með 24 stig en Gísli Freyr Svavarsson kom næstur með 17 stig. Gísli tók einnig níu fráköst.

Tómas Aron Viggósson var atkvæðamestur hjá Breiðhyltingum með 20 stig, fimm fráköst, fimm stoðsendingar og fimm stolna bolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×