Lögregla þiggur með þökkum upplýsingar frá spámiðlum við rannsókn mála en þær upplýsingar eru skoðaðar með tilliti til annarra gagna, rétt eins og allar aðrar upplýsingar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er ekki með neina miðla á sínum snærum.
Þetta kemur fram í svari Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, við fyrirspurn fréttastofu um samband lögreglu og spámiðla. Anna Birta Lionaki, sem vakti mikla athygli í vikunni fyrir skyggnilýsingakvöld sitt og viðtal um það í Íslandi í dag, birti á Facebook-síðu sinni á miðvikudag langa færslu um hvað felst í því að vera miðill og sagði þar meðal annars að henni þætti merkilegt hve lítið væri talað um vinnu miðla í lögreglumálum.
„Lögreglan þiggur alla þá aðstoð sem henni býðst, en það kemur sannarlega fyrir að miðlar bjóða fram upplýsingar í ákveðnum tilvikum, til dæmis þegar leitað er að týndu fólki,“ segir í svari Sigríðar Bjarkar. „Í slíkum tilvikum eru upplýsingarnar skoðaðar með tilliti til annarra gagna, rétt eins og allar aðrar upplýsingar sem berast. Þannig erum við ekki með miðla á okkar snærum, en þiggjum með þökkum upplýsingar frá þeim þegar það á við.“
Lögreglu víða um heim berast reglulega ábendingar um hin og þessi mál frá fólki sem heldur því fram að það búi yfir yfirnáttúrulegum kröftum. Oftast kannar lögregla sannleiksgildi þeirra ábendinga, til að mynda fylgdi lögregla í Portúgal eftir ýmsum ábendingum varðandi hvarf bresku stúlkunnar Madeleine McCann frá fólki sem taldi sig hafa upplýsingar um afdrif hennar að handan.
Lögregla skoðar ábendingar spámiðla líkt og aðrar
Tengdar fréttir
Anna Birta stóðst skyggnilýsingapróf upp á hundrað
Forseti Sálarrannsóknarfélags Íslands segir efahyggjumenn ekki málefnalega í gagnrýni sinni á miðla. Heimspekingur segir siðferðilega rangt að blekkja fólk.
"Hvernig getur þetta farið fyrir brjóstið á ykkur?“ spyr Anna Birta
Anna Birta Lionaraki svarar fólki á Facebook-síðu sinni.
Vonar að miðillinn fari í mál við sig
Frosti Logason segir Önnu Birtu Lionaraki svikamiðil, skyggnilýsingar hennar séu frat og hún sé algjör fúskari.
Frosti við Önnu miðil: Fáðu þér heiðarlega vinnu
Hart var tekist á um starfsemi spámiðla í Íslandi í dag fyrr í kvöld.