Körfubolti

Sjáðu stóra sveitastrákinn pakka meisturunum saman | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason byrjaði að æfa fyrir tveimur árum.
Tryggvi Snær Hlinason byrjaði að æfa fyrir tveimur árum. vísir/stefán
Tryggvi Snær Hlinason, 18 ára og 216cm hár miðherji 1. deildar liðs Þórs, sýndi svo um munaði að hann er einn allra efnilegasti körfuboltamaður landsins þegar Þórsarar stóðu í Íslandsmeisturum KR í 32 liða úrslitum bikarsins.

KR vann leikinn eftir dramatískar lokamínútur, 87-84, en Tryggvi Snær átti stórleik og skoraði 20 stig og tók 14 fráköst. Hann réði ríkjum í teignum og kláraði níu af ellefu skotum sínum auk þess sem hann varði tvö skot frá KR-ingunum.

Sjá einnig:1. deildar lið Þórs stóð í Íslandsmeisturum KR | Sjáðu lokamínúturnar

Tryggvi spilar undir stjórn Benedikts Guðmundssonar hjá Þór.vísir/stefán
Saga Tryggva er skemmtileg, en hann hálfpartinn fannst í Þingeyjasveitinni fyrir tveimur árum og hóf þá að æfa körfubolta.

Hann lék sitt fyrsta tímabil í fyrra með Þór í 1. deildinni. Tryggvi spilaði 15 leiki og skoraði 6,5 stig og tók 4,6 fráköst að meðaltali í leik. Hann spilaði að meðaltali tæpar 18 mínútur í leik.

Tryggvi spilaði með U18 ára landsliði Íslands á Norðurlandamótinu í Svíþjóð í sumar og var þar í lykilhlutverki.

Framtíðin er björt hjá þessum unga og efnilega körfuboltamanni eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan sem Þórsarar tóku saman eftir stórleik hans gegn KR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×