Innlent

Perlan enn á kafi í höfninni

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Kafarar hafa unnið sleitulaust að því að þétta Perluna. Þess verður freistað að koma henni á flot. Fréttablaðið/Ernir
Kafarar hafa unnið sleitulaust að því að þétta Perluna. Þess verður freistað að koma henni á flot. Fréttablaðið/Ernir
12 þúsund lítrar af skipaolíu eru í sanddæluskipinu Perlunni en í gær héldu kafarar áfram vinnu við að þétta það til að koma í veg fyrir leka.

Nú liggur fyrir tillaga Björgunar ehf. um hvernig mögulegt er að standa að verki við að ná Perlunni af hafsbotni við Ægisgarð.

Í dag munu kafarar skoða skipið frekar og verður þá tekin endanleg ákvörðun um aðgerðir. Verði niðurstaðan að hefja dælingu úr skipinu þá er stefnt að því að sú vinna hefjist um 17.00 í dag.Takist vel til er gert ráð fyrir að um 6 klukkustundir taki að dæla úr skipinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×