Sport

Sjáðu eldræðu Ray Lewis

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ray Lewis kann þá list að tala.
Ray Lewis kann þá list að tala. vísir/getty
Hinn magnaði Ray Lewis er enn að hjálpa sínum mönnum í Baltimore Ravens þó svo hann sé hættur að spila.

Hann mætti í klefann fyrir leik sinna manna gegn San Diego í gær og hélt eina af sínum frægu ræðum. Hún skilaði sínu því Hrafnarnir unnu eftir framlengdan leik.

Lewis var andlegur leiðtogi Ravens í mörg ár og ræður hans voru svo kröftugur að hann var kallaður Séra Ray.

Ræðuna mögnuðu má sjá hér að neðan.

Baltimore Locker Room - Nov 1

BALTIMORE!!!! W!

Posted by Ray Lewis on Sunday, November 1, 2015
NFL

Tengdar fréttir

Tímabilið búið hjá Bell og Smith

Meiðslatíðnin í NFL-deildinni er há og tvær af stjörnum deildarinnar spiluðu sinn síðasta leik í vetur í gær.

Peyton sendi út skýr skilaboð

Hinn goðsagnakenndi leikstjórnandi Denver Broncos, Peyton Manning, svaraði mörgum spurningum í nótt og öll svörin hans á stóra prófinu gegn Green Bay voru rétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×