Innlent

Hraðfréttamenn sagðir hafa narrað börnin í aðför að Gísla Marteini

Jakob Bjarnar skrifar
Þetta var skemmtun og tómstundastarf sem unglingar taka þátt í, ekki til að vera skemmtiatriði með skrílslæti í einhverju Hraðfréttum, segir Salvör Kristjana.
Þetta var skemmtun og tómstundastarf sem unglingar taka þátt í, ekki til að vera skemmtiatriði með skrílslæti í einhverju Hraðfréttum, segir Salvör Kristjana.
Salvör Kristjana Gissurardóttir lektor og Pírati segist styðja starfsmenn Reykjavíkurborgar eindregið í því að vilja koma í veg fyrir að Hraðfréttamenn birti myndskeið sem þeir tóku á Skrekk – hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkur.

Unglingar narraðir í skrílslæti Hraðfrétta

Vísir greindi frá málinu nú í morgun, en það snýst um að Soffía Pálsdóttir forstöðumaður frístundasviðs Reykjavíkurborgar, samband við Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóra innlendrar dagskrárgerðar og fór fram á að tilteknar tökur Hraðfréttamanna yrðu ekki notaðar í þættinum.

Málið hefur hefur á sér flokkspólitískan flöt og sem dæmi hefur Vörður, fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins, dreift fréttinni á Twittersíðu sinni. Salvör Kristjana var í 4. sæti Pírata fyrir síðustu alþingiskosningar, þá í Reykjavík norður og hún tjáir sig um málið í athugasemd á Vísi þar sem hún segir þetta svo sjálfsagt að ekki ætti svo mikið sem þurfa að ræða það:

Atriðið aðför að einum manni

„Unglingar sem eru í tómstundastarfi á vegum Reykjavíkur eru gabbaðir til að vera með í einhverju grínskemmtiatriði sem er aðför að einum manni. Þetta var ekki skemmtun sem var auglýst og unglingar komu á vegna þess að aðalatriði dagskrár var „gerum aðsúg og hróp og köll að einhverjum“. Þetta var skemmtun og tómstundastarf sem unglingar taka þátt í, ekki til að vera skemmtiatriði með skrílslæti í einhverju Hraðfréttum heldur vegna þeirrar dagskrár sem þar fer fram,“ segir Salvör.

Hún bætir því við að það séu hæfileikar krakkana sem eru vettvangur þessarar skemmtunar; „ekki hvað Hraðfréttum finnst fyndið og hvað þeir vilja hafa sem ókeypis skemmtiatriði í sínum þætti. Ég styð starfsmenn Reykjavíkurborgar eindregið í þessu máli og þakka þeim fyrir að standa vörð um að börn og unglingar séu ekki gabbaðir inn í einhver opinber fíflalæti á meðan þeir eru á skemmtun á vegum borgarinnar.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×