Körfubolti

Tveir nýliðar og fjórar systur í EM-hópi kvennalandsliðsins í körfubolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Berglind Gunnarsdóttir og Bergþóra Holton Tómasdóttir.
Berglind Gunnarsdóttir og Bergþóra Holton Tómasdóttir. Vísir/Stefán
Ívar Ásgrímsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, hefur valið fimmtán manna æfingahóp fyrir fyrstu leiki íslenska liðsins í undankeppni EM 2017.

Ívar velur tvo nýliða í hópinn að þessu sinni en það eru þær Berglind Gunnarsdóttir frá Snæfelli og Bergþóra Holton Tómasdóttir frá Val.  Berglind á eldri systur í liðinu en Gunnhildur Gunnarsdóttir hefur verið fastamaður í landsliðinu undanfarin ár.

Fyrsti leikur íslenska liðsins verður í Ungverjalandi laugardaginn 21. nóvember en spilað verður í borginni Miskolc, sem er Helenu Sverrisdóttur góðu kunn þar sem hún lék með liðinu sem atvinnumaður fyrir 2 árum.

Helena er að sjálfsögðu í hópnum en hún er fyrirliði og leikjahæsti leikmaður hópsins.  Yngri systir hennar, Guðbjörg Sverrisdóttir, var líka valin og því eru fjórar systur í hópnum að þessu sinni.

Lið kemur svo heima og spilar heimaleik við Slóvakíu í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 25. nóvember. Leikir í undankeppninni fara nú fram inn á tímabilinu og því verður gert hlé á Domino´s deild kvenna á meðan.

Ungverjar og Slóvakía voru bæði á EuroBasket kvenna síðastliðið sumar og því verðugir andstæðingar fyrir stelpurnar okkar en einnig leikur Portúgal í riðli með þessum þjóðum.

Keppt verður í fyrsta sinn í nýju keppnisfyrirkomulagi FIBA í undankeppninni og verður leikið í tveimur „gluggum“ og verður seinni umferðin á þessu keppnistímabili leikinn í lok febrúar, en þá verða einnig tveir leikir, annar á útivelli og hinn hér heima.

Seinni hlutinn í undankeppni EM 2017 verður svo með sama sniði á næsta tímabili. (haust 2016 og febrúar 2017).

Æfingahópur íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta:

Auður Íris Ólafsdóttir - Haukar · Bakvörður f. 1992 · 174 cm · 6 landsleikir

Berglind Gunnarsdóttir - Snæfell · Bakvörður f. 1992 · 177 cm · Nýliði

Bergþóra Holton Tómasdóttir – Valur · Bakvörður · f. 1994 · 180 cm · Nýliði

Björg Einarsdóttir – Grindavík · Bakvörður · f. 1992 · 165 cm · 3 landsleikir

Bryndís Guðmundsdóttir – Snæfell · Framherji · f. 1988 · 178 cm · 35 landsleikir

Guðbjörg Sverrisdóttir – Valur · Bakvörður · f. 1992 · 180 cm · 7 landsleikir

Gunnhildur Gunnarsdóttir – Snæfell · Bakvörður · f. 1990 · 176 cm · 19 landsleikir

Helena Sverrisdóttir – Haukar · Bakvörður · f. 1988 · 184 cm · 57 landsleikir

Jóhanna Björk Sveinsdóttir – Haukar · Framherji · f. 1989 · 178 cm · 5 landsleikir

Marín Laufey Davíðsdóttir – Keflavík · Miðherji · f. 1995 · 180 cm · 5 landsleikir

Pálína Gunnlaugsdóttir – Haukar · Bakvörður · f. 1987 · 167 cm · 31 landsleikir

Petrúnella Skúladóttir – Grindavík · Bakvörður · f. 1985 · 177 cm · 28 landsleikir

Ragna Margrét Brynjarsdóttir – Stjarnan · Miðherji · f. 1990 · 188 cm · 29 landsleikir

Sandra Lind Þrastardóttir – Keflavík · Miðherji · f. 1996 · 182 cm · 3 landsleikir

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir – Grindavík · Framherji f. 1988 · 181 cm · 36 landsleikir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×