Sport

Kjálkabraut leikstjórnanda Jets og fær að vera fyrirliði gegn Jets

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rex Ryan er skrautlegur karakter.
Rex Ryan er skrautlegur karakter. vísir/getty
Þjálfari Buffalo Bills, Rex Ryan, er ákaflega stríðinn maður og hann er búinn að gera sitt gamla félag, NY Jets, brjálað fyrir leik liðanna annað kvöld.

Ryan þjálfaði Jets í fimm ár en var rekinn eftir síðasta tímabil. Hann var þá ráðinn sem þjálfai Bills.

Það varð allt vitlaust í herbúðum Jets í ágúst er IK Enemkpali kjálkabraut leikstjórnanda Jets, Geno Smith, er þeir voru að rífast um litla skuld inn í klefa. Smith hefur fyrir vikið ekkert spilað í vetur.

Enemkpali var rekinn frá Jets samdægurs. Daginn eftir var hann aftur á móti kominn með nýja vinnu. Ryan hafði samið við hann og það vakti litla kátínu hjá forráðamönnum Jets.

Þeir brostu líklega ekki mikið í gær er Ryan tilkynnti að téður Enemkpali yrði einn af fyrirliðum Bills í fimmtudagsleiknum gegn Jets.

Ryan neitar því að hann sé að stríða Jets. Hann einfaldlega leyfi mönnum að vera fyrirliðar gegn sínum gömlu félögum.

Fjörið á morgun gæti því byrjað áður en leikurinn hefst og áhugasamir ættu að stilla inn á leikinn nokkrum mínútum áður en hann hefst.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×