Viðskipti erlent

Þetta er það sem við vitum um iPhone 7

Sæunn Gísladóttir skrifar
Business Insider tók saman það sem þeir eiga von á í nýju iPhone gerðinni sem líklega mun fá nafnið iPhone 7.

Hann fer líklega í sölu í október 2016

Apple hefur undanfarin árin kynnt nýjustu gerðina af iPhone símanum í september og sett svo vöruna á markað í október. Ólíklegt er að stjórnendur stígi út af sporinu með þetta á næsta ári.

Það verða líklega tvær stærðir í boði

Á síðasta ári kynnti Apple í fyrsta sinn tvær stærðir af iPhone, 6 og 6 Plus og endurtók leikinn í ár. Því er líklegt að tvær týpur verði í boði af nýja símanum.

Hann mun líklega vera ansi ólíkur iPhone 6S

Síðustu árin hefur Apple þróað nýja týpu annað hvert ár, eins og iPhone 4,5, og 6 og bætt svo og breytt innihaldi hennar með S útgáfum. Því er talið líklegt í ljósi þess að síðast gaf Apple út 6S að næsti sími verði iPhone 7 með miklum tækninýjungum.

Stýrikerfið verður líklega iOS 10

Á hverju ári gefur Apple út nýtt stýrikerfi í aðdraganda nýrrar útgáfu af iPhone. Á þessu ári var það iOS 9 og því er talið líklegt að á næsta ári verði það iOS 10.

Hann verður kannski laus við „home“ takkann

Sérfræðingar telja líklegt að Apple muni losa sig við „home“ takkann og í staðinn stækka skjáinn. Sérfræðingar telja að líkurnar á þessu séu 50 prósent.

Betri skjár

Lengi hefur verið spáð fyrir um það að Apple fari að bæta skjáinn á símum sínum sem eru þekktir fyrir að brotna. Verið er að þróa betri skjátækni en óvíst er hvort hún verði tilbúin fyrir iPhone 7.

Batteríið gæti orðið betra

Talið er líklegt að batteríið muni endast lengur á nýja iPhone símanum.

Hann gæti verið vatnsheldur

Óvíst er hvort verði af því en sumir trúa því að nýji síminn verði vatnsheldur. iPhone 6 S er mun betur varinn gagnvart vatni en fyrri símar. Því er talið líklegt að Apple taki þetta skrefinu lengra og kynni vatnsheldann síma á næsta ári.

Hann gæti verið þynnri en fyrri símar

Spáð er því að síminn verði 6 til 6,5 millimetrar á þykkt samanborið við 7,3 til 7,1 millimetra þykkt á 6S og 6S Plus.

Heyrnartólin gætu horfið

Sumir telja að holan þar sem stinga má inn heyrnatólum á iPhone komi í veg fyrir að hægt sé að gera hann þynnri því gæti verið að holan myndi hverfa á næstu týpum. Í staðinn yrði fólk þá að nýta þráðlaus heyrnartól.

Apple gæti verið að þróa iPhone Mini

Kenningar eru um að Apple sé að íhuga að gefa út fjögurra tommu snjallsíma sem væri ódýrari og myndi heita iPhone Mini. Hann yrði gefinn út í byrjun 2016 og yrði í svipaðri stöðu á markaðnum og iPhone 5C var. Óvíst er þó hvort áhugi verði fyrir tækinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×