Valencia krækti í stig gegn Barcelona á lokamínútum leiksins Kristinn Páll Teitsson skrifar 5. desember 2015 21:15 Suarez fagnar hér marki sínu í kvöld Vísir/Getty
Valencia krækti í eitt stig í 1-1 jafntefli gegn Barcelona á heimavelli í kvöld en þetta var fyrsti leikur liðsins undir stjórn Gary Neville. Neville sem tók við starfinu á dögunum var þó ekki á hliðarlínunni í kvöld en hann var mættur í stúkuna til þess að fylgjast með leiknum. Börsungar sem höfðu unnið átta leiki í röð í öllum keppnum voru mun sterkari aðilinn í leiknum og komust verðskuldað yfir í upphafi seinni hálfleiks með marki frá Luis Súarez. Var þetta mark númer 12 í síðustu 9 leikjum hjá Suárez en hann virtist vera rangstæður í aðdraganda marksins og voru varnarmenn Valencia gríðarlega ósáttir að það hafi fengið að standa. Stuttu fyrir lok venjulegs leiktíma var það hinn ungi Santi Mina sem skoraði jöfnunarmark Valencia eftir góðan undirbúning Paco Alcacer. Liðin fengu bæði tækifæri til þess að stela sigrinum undir lok leiksins en þurftu að sætta sig við jafntefli. Barcelona er áfram á toppi spænsku deildarinnar en er aðeins með tveggja stiga forskot á Atletico Madrid að loknum leikjum dagsins eftir 2-0 sigur Atletico á Granada í dag.
Spænski boltinn Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Fleiri fréttir Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Sjá meira