Sport

Hvernig fór Green Bay að þessu? | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rodgers og félagar fagna eftir leik.
Rodgers og félagar fagna eftir leik. vísir/getty
Green Bay Packers vann í nótt lygilegan sigur á Detroit Lions með snertimarki ársins í NFL-deildinni.

Green Bay var undir í leiknum og leiktíminn var liðinn er Aaron Rodgers, leikstjórnanda Packers, var skellt í grasið. Víti og Packers fékk eina tilraun í viðbót þó svo leiktíminn væri liðinn.

Það þurfti kraftaverk enda var liðið rúmlega 50 metrum frá marki. Rodgers gerði sér samt lítið fyrir og kastaði 61 jarda sendingu í endamarkið sem Richard Rodgers greip og tryggði þar með Packers sigurinn, 27-23.

Packers var búið að tapa nokkrum leikjum í röð fyrir nóttina en Lions var á siglingu og búið að vinna þrjá í röð. Packers er 8-4 eftir leikinn en Lions er 4-8.

Ótrúlegur endir á ótrúlegum leik og hér má sjá snertimarkið ótrúlega.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×