Albönsku fjölskyldurnar fá íslenskan ríkisborgararétt

Frumvarpið var birt á vef þingsins rétt í þessu og þar eru bæði Pepaj-fjölskyldan og Phellumb-fjölskyldan á meðal þeirra sem nefndin leggur til að fái íslenskan ríkisborgararétt. Í báðum fjölskyldum eru langveik börn, þeir Kevi, sem er með ólæknandi slímseigjusjúkdóm, og Arjan, sem er með hjartagalla.
Það vakti vægast sagt mikla reiði í samfélaginu þegar þeir voru sendir úr landi í liðinni viku ásamt fjölskyldum sínum þar sem mörgum blöskraði að langveik börn væru send úr landi, og það til Albaníu þar sem afar umdeilt er hvort heilbrigðiskerfið geti veitt drengjunum þá þjónustu sem þeir þurfa.
Tengdar fréttir

Vonar að albönsku fjölskyldurnar komi aftur fyrir áramót
Albönsku fjölskyldurnar tvær sem sendar voru úr landi síðasta fimmtudag hafa sótt um íslenskan ríkisborgararétt, í stað þess að sækja um hæli. Vinur fjölskyldnanna vonar að málið verði afgreitt hratt og að þær komi aftur hingað til lands fyrir áramótin.

„Stjórnvöld eiga ekki að komast upp með að gera svona lagað“
Um 1.700 manns hafa boðað komu sína á samstöðufund fyrir Kevi og Arjan sem hin fimmtán ára gamla Una María boðaði til.

Öll gögn Albananna eru komin í hendur Alþingis
Pepoj-fjölskyldan er stödd úti í Skode í Albaníu og er afskaplega fegin stuðningi sem hún hefur fengið frá íslensku samfélagi. Til að komast til Íslands aftur hefur hún þurft að afla gagna, svo sem sakavottorða, hjúskaparvottorðs og fæðingarvottorða.

Allsherjarnefnd ætlar að skoða mál albönsku fjölskyldnanna
Annar fjölskyldufaðirinn segir að lögmaður þeirra hafi ráðlagt þeim að draga sína kæru til baka.

„Þetta stríðir gegn réttlætiskennd okkar og siðferði“
Á þriðja þúsund hafa skrifað undir áskorun til innanríkisráðherra um að afturkalla ákvörðun útlendingastofnunar að vísa fjölskyldum tveggja langveikra drengja á brott í vikunni. Boðað hefur verið til mótmæla á þriðjudag.