Bíó og sjónvarp

Fjarvera Will Smith í framhaldinu af Independence Day útskýrð

Birgir Olgeirsson skrifar
Jeff Goldblum mætir aftur í framhaldsmyndinni en ekki Will Smith.
Jeff Goldblum mætir aftur í framhaldsmyndinni en ekki Will Smith. Vísir/Youtube
Aðdáendur Independence Day-myndarinnar frá árinu 1996 tóku andköf í gær þegar kvikmyndaverið 20th Century Fox frumsýndi stikluna fyrir framhaldsmyndina Independence Day: Resurgence (Endurvakningin).

Geimverurnar mæta aftur til jarðarinnar tvíefldar og bálillar eftir stríðið mikla árið 1996 í þessari mynd og mun reyna á alla kænsku jarðarbúa til að vinna bug á þessum óvini.

Margir urðu þó vonsviknir að sjá ekki Will Smith í stiklunni sem Steve Hiller sem átti stóran þátt í því að vinna bug á innrásarher geimveranna árið 1996. Það hafði legið fyrir í töluverðan tíma að Will Smith hafði hafnað þátttöku í þessari mynd. Hann var í fyrstu áhugasamur um framhaldið en eftir að hafa leikið í kvikmyndinni After Earth, sem kom út árið 2013 og gekk afar illa, missti Smith áhugann á vísindaskáldskap.

Miðað við hversu áberandi Steven Hiller var í fyrri myndinni var ljóst að ekki var hægt að leggja í framhald án þess að útskýra fjarveru hans.

Sjá einnig: Geimverurnar mæta bálillar til baka í framhaldi Independence day

Hafa framleiðendur myndarinnar sett í loftið heimasíðuna War of 1996 þar sem er farið yfir atburðina sem áttu sér stað á þeim tveimur áratugum sem liðu á milli fyrstu myndarinnar og framhaldsins sem er væntanlegt í kvikmyndahús í júní á næsta ári.

Á síðunni kemur fram að í nóvember árið 1997 var enduruppbyggingin komin vel á veg eftir stríðið mikla árið 1996. Búið var að yfirbuga flestar geimverurnar , fyrir utan lítinn andstöðuhóp á afskekktu svæði í Kongó.

Mars árið 1998: Leiðtogar heimsins leggja til hliðar allar deilur og í framhaldinu er stofnuð stofnuð alþjóðleg varnarmálastofnun sem fylgist grannt með grunsamlegum ferðum í geimnum og undirbýr varnir jarðarinnar ef að til annarrar innrásar.

Í ágúst árið 1999 nær mannkynið að innleiða varnarbúnað geimveranna í orustuþoturnar sínar. Í framhaldinu er smíðuð nokkurskonar tvinnþota sem sameinar kosti orustuþotu og loftför geimveranna.

Og þá er komið að örlögum Stevens Hiller, sem Will Smith lék, en hann fórst í reynsluflugi á þessari nýju tvinnþotu í apríl árið 2007.

Tvinnþotan var þó ekki eina tækniframförin sem mannkynið fékk frá geimverunum því samkvæmt því sem kemur fram á síðunni War of 1996 þá voru snjallsímarnir, drónar og líkamsskannar á flugvöllum fengnir frá geimverunum.

Þeir sem eru hvað spenntastir fyrir frumsýningu myndarinnar geta því drepið tímann fram að frumsýningardeginum í júní á næsta ári inni á þessari síðu. Síðan verðum við mannfólkið einfaldlega að vona að geimverurnar séu ekki komnar með vírusvörn í þetta skiptið.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.