Gaman að kippa fólki úr jafnvægi 14. desember 2015 11:00 "Það skapaðist dáldið "hæp“ þegar við settum fyrsta lagið á netið, sem var Houses in the Hills,” segir tónlistarmaðurinn Sturla Atlas. MYND/ANTON
Tónlistarmaðurinn Sturla Atlas stökk fram á sjónarsviðið í sumar og hristi rækilega upp í íslensku rapp- og hipphoppsenunni. Hálfu ári síðar er hann búinn að senda frá sér halasnælduna (e. mixtape) Love Hurts, sem inniheldur 11 lög, og plötuna These Days en báðir gripirnir hafa vakið mikla athygli. Sturla Atlas, sem heitir réttu nafni Sigurbjartur Sturla Atlason, er 23 ára og ættaður úr miðbæ Reykjavíkur. Hann er ekki sólólistamaður þótt nafnið gefi annað til kynna heldur semur hann efnið og kemur fram ásamt félögum sínum í 101 Boys. Meðal þeirra eru Jóhann Kristófer Stefánsson, Arnar Ingi Ingason og Logi Pedro Stefánsson sem iðulega er kenndur við Retro Stefson en hann sér einnig um upptökur og hljóðblöndun. „Ég, Jóhann og Logi syngjum og röppum en Arnar Ingi og Logi vinna tónlistina. Margir aðrir koma að verkefninu, t.d. Kjartan Hreinsson, sem sér um mikið af sjónrænni hönnun hópsins. Hann ljósmyndar og skrásetur flest allt sem við gerum. Hægt er að fylgjast með honum á Instagram undir nafninu @k_tanman og á ktanman.tumblr.com.“Alltaf kringum tónlist Sturla Atlas gekk í Austurbæjarskóla og síðar Menntaskólann við Hamrahlíð. Núna er hann á síðasta ári í leikaranámi við Listaháskóla Íslands. „Síðustu vikur hef ég aðallega verið í skólanum að búa til og sýna leiksýningu með bekknum mínum ásamt Ragnari Bragasyni, kennara okkar. Ég hef þó alltaf verið mikið í kringum tónlist þótt ég hafi ekki alltaf verið að búa hana til. Móðir mín er þverflautuleikari, ég æfði á gítar og trommur þegar ég var yngri og svo var ég bæði í rapp- og rokkhljómsveitum þangað til ég varð 14 ára. Allir sem voru í þessum hljómsveitum á sínum tíma eru núna að vinna í 101 Boys kollektívinu sem fæst við tónlist og ýmsa aðra sköpun.“Kýldum á þetta Aðdragandinn að Love Hurts var skammur að sögn Sturlu. „Við kýldum eiginlega bara á Love Hurts sem kom út í júní. Við gerðum hana á einum mánuði, ritskoðuðum okkur ekki mikið, heldur keyrðum bara áfram og gerðum eins mikið og við gátum. Það var mjög gaman að vinna þessi lög og á tímabili gerðum við fátt annað en að vera í stúdíóinu allan daginn og fram á kvöld og fórum síðan út á nóttunni. Þegar vinnan við These Days hófst þá vönduðum við okkur meira, unnum hvert og eitt lag lengur og leyfðum hugmyndum að meltast betur. Þar að auki var These Days aðeins stærri pakki að því leyti að við gerðum líka fatalínu í samstarfi við Sigurð Oddsson og gáfum út tímarit með Kjartani Hreinssyni.“ Love Hurts og These Days voru eingöngu gefnar út á rafrænu formi og hægt er að hlusta á þær og hlaða niður ókeypis á www.sturlaatlas.com.„Ég held að fólki hafi fundist erfitt að geta ekki skilgreint hvað við værum að gera. Þetta var kannski smá kynslóðaárekstur eða menningarárekstur, sem er frekar fyndið,” segir Sturla Atlas.MYND/ANTONMargir töldu þetta grín Góðar viðtökur í sumar og haust komu honum svolítið í opna skjöldu. „Við bjuggumst allavegana ekki við þessu þegar við vorum að byrja. Það skapaðist dáldið „hæp“ þegar við settum fyrsta lagið á netið, sem var Houses in the Hills. Annars var mjög eftirminnilegur dagur þegar fyrsta myndbandið kom á netið en það var við lagið Over Here. Það var ákveðinn hápunktur.“ Á mjög skömmum tíma vakti Sturla Atlas mikla athygli. „Þegar við gáfum út Over Here fannst mér eins og sumir áttuðu sig ekki á hvað væri í gangi. Margir héldu að við værum að grínast eða að framkvæma einhvern gjörning. Ég held að fólki hafi fundist erfitt að geta ekki skilgreint hvað við værum að gera. Þetta var kannski smá kynslóðaárekstur eða menningarárekstur, sem er frekar fyndið. Það er gaman að kippa fólki smá úr jafnvægi.“Nota helst Twitter Eins og með aðra tónlistarmenn, sérstaklega ef yngri kynslóðinni, skipta samfélagsmiðlarnir öllu máli fyrir markaðssetningu tónlistarinnar. „Þeir skipta reyndar öllu máli fyrir flesta listamenn eða skemmtikrafta í dag. Við notum aðallega Twitter til að koma hlutum á framfæri og höfum gert það síðan Sturla Atlas byrjaði. Síðan er öll tónlistin okkar á Spotify og hægt að skoða fatalínuna okkar og tímaritið á sturlaatlas.com.Stefnir á útskrift Næstu mánuðir verða annasamir hjá tónlistarmanninum og leiklistarnemanum. „Næstu helgi kem ég fram á risatónleikum með GusGus, Úlfi Úlfi og Gísla Pálma. Á Þorláksmessu verðum við með pop-up búð í Maclandi á Laugaveginum. Við munum selja föt og varning og höldum líka tónleika. Síðan spilum við á Síðasta Sjens í Iðnó 30. desember ásamt Retro Stefson og Reykjavíkurdætrum sem verður veisla. Annars er ég að fara á síðustu önnina mína í LHÍ þannig ég mun vera mikið í skólanum næsta hálfa árið. Vanalega þegar það er minna að gera hjá mér í skólanum þá finnum við tíma til að taka törn í stúdíóinu þannig við munum örugglega bara halda því vinnulagi áfram í vetur.“Nánari upplýsingar um Sturlu Atlas má finna á www.sturlaatlas.com, á Twitter (@sturlaatlas) og á Facebook. Á YouTube-rásinni Sturla Atlas má einnig skoða myndböndin hans.
Menning Tónlist Mest lesið Eiga nú glöðustu hunda í heimi Lífið Steven og Guðný Ósk eru nýtt par Lífið Lést eftir að hafa fallið úr bíl á ferð Lífið Fræga fólkið streymdi á hápunkt ársins í Þjóðleikhúsinu Lífið Björn Ingi leikur í ofurhetjumynd Lífið Brúðkaup ársins 2024 Lífið Sjáðu Sandler snúa aftur sem Happy Gilmore í nýrri kitlu Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Lífið Jólahaldið allt í rugl þegar frumsýning er annan í jólum Menning Fleiri fréttir Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Live in a fishbowl: Stórvinir X-ins í Brain Police rifu þakið af húsinu Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Uppáhalds jólalögin: Munkadjamm og jólaleg sambandsslit Kunna ekki að slaka á og heyrðu í Svölu Björgvins Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig „Látið jólaljós ykkar skína skært“ Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi Sjá meira