Innlent

Egill telur MMA ekki íþrótt heldur ofbeldi

Jakob Bjarnar skrifar
Egill telur MMA ekki íþrótt, sem fer fyrir brjóstið á Bubba sem spyr hvort skipa eigi feitu fólki að fara í megrun; því það sé óhollara.
Egill telur MMA ekki íþrótt, sem fer fyrir brjóstið á Bubba sem spyr hvort skipa eigi feitu fólki að fara í megrun; því það sé óhollara.
Egill Helgason sjónvarpsmaður og álitsgjafi er háðskur þegar hann fjallar um bardagann í MMA í nótt, á vefsvæði sínu á Eyjunni. Pistillinn er undir yfirskriftinni 114 höfuðhögg -- og þau urðu bara fleiri og hefst hann á þessum orðum: „Stundum er sagt að góð íþrótt sé gulli betri.“ Þegar líður á lesturinn má ljóst má vera að Egill telur MMA ekki íþrótt.

Egill áður tjáð sig um andúð sína á MMA og ljóst að hann telur bardagann ekki tengjast íþróttum hætishót. Hann segir gríðarlegan fréttaflutningur hefur verið af viðureign Gunnars Nelson og Demians Maia í íþróttinni MMA, langmestur þó á fjölmiðlum 365.

Sjá einnig: Sjáðu bardaga Gunnars í heild sinni: Maia var of stór biti fyrir Gunnar Nelson

„Það fór svo að Gunnar tapaði. Ósigur hans fólst í því að hann var keyrður niður í gólf, honum haldið og hann laminn viðstöðulaust í hausinn.“

Bubbi Morthens, sem lýsti bardögunum í nótt á Stöð 2 Sport, lætur til sín taka í athugasemdakerfinu og spyr hvernig menn nenni þessu tuði? „Menn ákveða sjálfir hvað þeir vilja og gera það eftir ströngum reglum í þessu dæmi þá MMA og hnefaleikum.“

Reyndar má þess geta að það var líkt og Bubbi væri tilbúinn í þennan slag því í lýsingu hans og Dóra DNA, kom Egill til tals og sagði Dóri eitthvað á þá leið að hann vonaði að Egill sæi ekki hversu blóðugt þetta var orðið á tímabili.

Bubbi bendir Agli og skoðabræðrum hans og systrum á að það verði miklu alvarlegri slys í hestaíþróttum um heim allan en í hnefalekum og MMA og þetta geti menn sannreynt ef þeir nenni að leita sér upplýsinga um það á netinu.

„Sumt fólk fer svo ílla með sig vegna ofáts, reykinga og drykkju,“ segir Bubbi og segir það þjóðfélaginu öllu dýrkeypt. Bubbi spyr meðal annars hvort rétt sé að skipa fólki sem er of feitt að fara í megrun?


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×