Bíó og sjónvarp

Ein af bestu og ástsælustu leikkonum landsins fer með hlutverk Malínar Brand í Skaupinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Kristófer Dignus og Malín Brand
Kristófer Dignus og Malín Brand vísir
Kristófer Dignus, leikstjóri Áramótaskaupsins í ár, var salírólegur þegar Vísir heyrði í honum í morgun þrátt fyrir að nú séu aðeins rúmir tveir sólarhringar í að öll þjóðin setjist fyrir framan sjónvarpstækin, vongóð um að í vændum sé hláturskast ársins.

„Þetta er allt svo pottþétt og vel skipulagt hjá mér að ég er alveg salírólegur. Við erum bara bókstaflega í dag að loka og læsa Skaupinu og senda það frá okkur upp á RÚV. Þannig að þetta er bara að klárast nema að það gerist eitthvað stórkostlegt í dag, en það þyrfti þá að vera virkilega stórkostlegt,“ segir Kristófer.

Þetta er í annað sinn sem hann leikstýrir Skaupinu en hann tók það að sér fyrst árið 2013. Hann segist ekki vera stressaður.

„Ég er meira bara spenntur að leyfa fólki að sjá þetta og koma þessu frá mér. Þetta er búið að vera með manni eiginlega í allt ár þar sem ég byrjaði á þessu í febrúar. Þannig að þetta er búið að vera lengi í þróun og nú er maður bara fullur tilhlökkunar að sýna fólki afraksturinn.“

„Við tökum öll þátt í ruglinu og það er svo gaman að gera grín að því“

Margir hafa haft orð á því að Skaupið hefði eiginlega bara skrifað sig sjálft í ár þar sem svo mikið var af skrýtnum og skondnum fréttum á árinu.

„Þetta er búið að vera mjög gjöfult ár, ég er alveg sammála því,“ segir Kristófer. „Það er af mörgu að taka af skrýtnum og fyndnum uppátækjum, bæði hjá stjórnmálamönnum og bara þjóðinni allri. Við erum svo klikkuð öll saman, við tökum öll saman þátt í ruglinu og það er svo gaman að gera grín að því.“

Hann segir þó Skaupið ekki skrifa sig sjálft.

„Við fólkið sem segir það þá segi ég bara „Prófið að skrifa Skaupið“ því það gerist svo sannarlega ekki af sjálfu sér. Það má líka eiginlega segja að það sé erfiðara að skrifa Skaupið þegar það er búið að vera svona mikið í gangi eins og á þessu ári. Þá þarf maður nefnilega svo mikið að velja og hafna og ákveða hvað fær að vera með og hvað ekki.“

Fjárkúgunarmálinu gerð skemmtileg skil

Eitt af því sem flestir gefa sér að verði í Skaupinu er fjárkúgun þeirra systra Malínar Brand og Hlínar Einarsdóttur á hendur Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra, sem er eitt af fréttamálum ársins. Kristófer segir að fjárkúgunarmálinu verði gerð góð og skemmtileg skil en að Malín muni þó ekki koma fram í eigin persónu eins og hún gerði í Hraðfréttum fyrr í vetur.

„Við förum alveg í hina áttina með þetta og það verður ein af bestu og ástsælustu leikkonum landsins sem fer með hlutverk Malínar í Skaupinu þannig að hún ætti að verða ánægð með það,“ segir Kristófer léttur að lokum.


Tengdar fréttir

Systurnar setja Twitter á hliðina

Twitter er sprunginn hér á landi og kemst fátt annað að en tilraun Malín Brand og Hlín Einarsdóttur til að kúga fé út úr Sigmundur Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×