Sport

Missir af leik helgarinnar eftir að hafa runnið í sturtu

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Coleman, hér til hægri, gæti farið að notast við hjálminn í sturtu.
Coleman, hér til hægri, gæti farið að notast við hjálminn í sturtu. Vísir/getty
Nýliðinn Tevin Coleman verður ekki með Atlanta Falcons í leik liðsins gegn Carolina Panthers um helgina eftir að hafa fengið heilahristing þegar hann rann í sturtu á dögunum.

Coleman sem var valinn með 73. valrétt af Atlanta Falcons í vor hefur fallið í skugga hlauparans Devonta Freeman í liði Falcons í vetur en hann hefur verið annar valkostur liðsins.

Coleman verður því ekki með liðinu í næst seinasta leik tímabilsins gegn toppliði Panthers sem Atlanta Falcons verður að vinna en NFL-deildin er með strangar reglur hvenær leikmönnum er hleypt aftur inn á völlinn eftir heilahristing.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×