Hátt í 5000 manns skoruðu á Útlendingastofnun
„Við erum að mótmæla þessari ákvörðun sem Útlendingastofnun tók fyrir fjölskylduna, því þau eru með lítil börn, þriggja ára og fjögurra ára stelpur. Aðstæður í Grikklandi eru mjög slæmar og henta ekki svona litlum börnum. Okkur finnst sem þetta sé mjög ómannúðlegt," segir Toshiki.
Kunna vel við sig í kuldanum
Með undirskriftunum til Útlendingastofnunar er farið fram á að málið fái efnislega meðferð. Málið er nú fyrir kærunefnd útlendingamála og alls óvíst um niðurstöðu þess. Eins og staðan er núna er fjölskyldan því í biðstöðu og verður að óbreyttu send aftur til Grikklands.
Þau hafa nú verið á Íslandi í fimm mánuði og láta vel af dvölinni í vetrarríkinu. „Ég kem frá heitu landi en þið búið á landi íssins. En mér finnst það bara jákvætt, okkur líður vel hér,"segir fjölskyldufaðirinn Wael Aliyadah.
Íbúðin þeirra er nú orðin heimilisleg og skreytt í tilefni jólanna. Þau hjónin segja Íslendinga hafa sýnt þeim mikinn hlýhug, enda hafa þeim borist hlýjar kveðjur og jólagjafir fyrir stelpurnar, sem eru á leikskóla. Foreldrarnir sækja íslenskunámskeið, en þau viðurkenna að þeim leiðist biðstaðan því þau vilja gjarnan vinna.
„Ég vil fá vinnu, ég og konan mín bæði. Okkur líkar ekki að hanga heima allan daginn, það gerir mann brjálaðan, við þurfum að hafa eitthvað við að vera, meira líf. Ég meina, já við erum í yndislegu landi og öruggu landi, það er fyrir öllu, en við viljum fá að vinna. Núna er okkur ekki leyft það, vegna kerfisins, en við viljum gera eitthvað gagn."
Enginn tók formlega við undirskriftunum
Þau óttast að þurfa að búa á götunni og verða viðskila við börn sín verði þau send aftur til Grikklands. Íslensk stjórnvöld hafa viðurkennt að Grikkland teljist ekki öruggt land fyrir hælisleitendur.
Forstjóri Útlendingastofnunar var ekki viðstaddur í dag og var enginn sendur í hennar stað til að taka á móti áskoruninni. Hjónin tóku því einfaldlega númer og biðu eftir að þjónustufulltrúi gæti afgreitt þau .
Tengdar fréttir

Unnur Brá: Trúi því að við sýnum þá mannúð að skoða þeirra mál sérstaklega
Formaður allsherjarnefndar telur að endurskoða eigi þá ákvörðun að vísa sýrlenskri fjölskyldu með tvö smábörn úr landi.

Leikskólastjórarnir vilja ekki sjá á bak sýrlensku systrunum
Leikskólastjórar á Drafnarsteini, foreldrar og nágrannar vilja gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda Jönu og Joulu á Íslandi. Systurnar hafa verið á leikskólanum

Voru á vergangi í Grikklandi
Wael Aliyadah og Feryal Aldahash voru nauðbeygð til að sækja um hæli í Grikklandi. Aðbúnaður þar var slæmur og oft var fjölskyldan á vergangi. Þau flúðu til Íslands til að tryggja öryggi dætra sinna, Jönu og Joulu.

Brjóta Barnasáttmála með brottvísun
Börn eiga samkvæmt alþjóðareglum rétt á vernd og öryggi. Íslenska ríkið ber ábyrgð á velferð barna sem hér eru stödd, þótt þau hafi hvorki landvistarleyfi né ríkisborgararétt.

„Er til meiri örvænting en að biðja ókunnugt fólk fyrir börnin sín?“
Þórunn Ólafsdóttir deilir sögu sýrlenskrar fjölskyldu á flótta en Útlendingastofnun synjaði fjölskyldunni um að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar.