Sport

Peyton loksins klár í bátana

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Peyton hefur bara áritað síðustu vikur.
Peyton hefur bara áritað síðustu vikur. vísir/getty
Eftir nokkrar vikur á hliðarlínunni vegna meiðsla er Peyton Manning aftur tilbúinn í slaginn. Það er samt ekki víst að hann spili með Denver Broncos um næstu helgi.

Þá fer fram lokaumferðin í deildarkeppni í NFL-deildarinnar. Denver tryggði sér sæti í úrslitakeppninni á mánudag en gulltryggir sér frí í fyrstu umferð úrslitakeppninnar takist liðinu að leggja San Diego á sunnudag.

„Ef liðið þarf á mér að halda þá verð ég til staðar og spila,“ sagði Manning en hinn ungi Brock Osweiler gæti þó spilað leikinn um helgina.

Spilamennska hans hefur verið upp og niður en hann kláraði þó verkefnið að koma liðinu í úrslitakeppnina. Manning var heldur ekki að spila vel áður en hann meiddist. Þess utan hefði hann líklega gott af meiri hvíld.

„Ég geri það sem þjálfaranum finnst vera best fyrir liðið. Þetta er búið að vera áhugavert ár en ég hef reynt að vera jákvæður. Ég hef lært mikið um sjálfan mig, ég hef verið góður liðsfélagi og reynt að hjálpa Brock eins og ég get,“ sagði Peyton.

Síðasti leikur Manning með Denver var 15. nóvember. Síðan steig Osweiler inn en hann hafði aldrei spilað leik í deildinni áður. Hann vann þrjá fyrstu leikina, svo gaf á bátinn en Osweiler vann leikinn mikilvæga síðasta mánudag eins og áður segir.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×