Sport

Kelly rekinn frá Eagles

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kelly á hliðarlínunni um síðustu helgi.
Kelly á hliðarlínunni um síðustu helgi. vísir/getty
Það er aðeins ein umferð eftir af deildarkeppni NFL-deildarinnar en forráðamenn Philadelphia Eagles gátu ekki beðið eftir að losna við þjálfarann og ráku hann því í gær.

Chip Kelly var að klára sitt þriðja tímabil með félagið og fær ekki að halda sínu starfi áfram. Pat Shurmur mun leysa hann af um næstu helgi gegn NY Giants.

Forseti félagsins hafði ekki einu sinni fyrir því að segja leikmönnum tíðindin en þeir ku ekki hafa brugðist vel við því.

Kelly kom úr háskólaboltanum með fullan poka af nýjum og ferskum hugmyndum. Hann þótti spennandi kostur og liðið var skemmtilegt hjá honum í fyrra.

Hann aftur á móti gjörbreytti liðinu fyrir þetta tímabil og þær breytingar gengu engan veginn upp. Liðið er búið að vinna sex leiki og tapa níu. Engin úrslitakeppni hjá félaginu að þessu sinni.

Flestir spá því að Kelly fari aftur í háskólaboltann.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×