Íbúð í Hlíðunum var útbúin til nauðgana
Lögregla staðfestir að tvær kærur hafi verið lagðar fram í málinu. Samkvæmt heimildum blaðsins voru árásirnar hrottalegar og íbúðin búin tækjum til ofbeldisiðkunar.
Fréttablaðið greindi frá árásunum fyrir helgi, en þær áttu sér báðar stað í október.
Tveir karlar eru grunaðir um árásirnar. Annar er á fertugsaldri og stundar nám við frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík, þar sem fórnarlömb árásanna stunda báðar nám.
Hinn er á svipuðum aldri og starfsmaður á hótelinu Reykjavík Marina. Hann hefur verið sendur í leyfi á meðan á rannsókn stendur.
Grunur um byrlun ólyfjan
Fyrri nauðgunin er sögð hafa átt sér stað eftir bekkjarskemmtun háskólanemanna á skemmtistaðnum Austur, í umræddri íbúð í Hlíðunum. Níu dögum síðar á hinni konunni að hafa verið nauðgað, í sömu íbúð, af báðum mönnunum eftir bekkjarskemmtun á Slippbarnum.
Umráðamaður íbúðarinnar er maðurinn sem starfaði hjá Reykjavík Marina, sem rekur Slippbarinn. Samkvæmt upplýsingum frá samnemendum kvennanna leikur grunur á að mennirnir hafi í það minnsta í öðru tilvikinu byrlað konunni ólyfjan áður en ráðist var á hana.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum blaðsins fann lögregla í íbúðinni ýmis tól og tæki sem mennirnir eiga að hafa notað við nauðganirnar, svo sem svipur, reipi og keðjur.
Hankar í loftinu
Þá voru hankar í loftinu sem grunur leikur á að mennirnir hafi notað til að hengja upp aðra konuna á meðan ráðist var á hana.
Lögreglan vill ekki staðfesta hvað hafi fundist við húsleitina. Hún staðfestir þó að húsleit hafi verið gerð í framhaldi af því að mennirnir voru handteknir.
Mönnunum var sleppt að lokinni frumrannsókn lögreglu. Ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim.
Tengdar fréttir
Nauðgunarmál í HR: Bæði atvikin að lokinni skólaskemmtun í miðbæ Reykjavíkur
Tveir karlmenn eru meintir gerendur í grófu kynferðisbrotamáli sem er til rannsóknar. Annar þeirra er nemandi við Háskólann í Reykjavík og er sagður hafa nauðgað tveimur bekkjarsystrum sínum í október.
Meintur nauðgari sendur í leyfi
Starfsmaður hótelsins Reykjavík Marina, sem grunaður er um aðild að hrottalegri nauðgun á konu í félagi við annan mann, hefur verið sendur í leyfi frá fyrirtækinu.
Grunur um nauðgun á bekkjarskemmtun HR
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins rannsakar lögreglan kynferðisbrot sem sagt er hafa átt sér stað á bekkjarskemmtun nemenda HR. Nemandi er sagður hafa nauðgað tveimur samnemendum sínum. Skólinn hefur gripið til aðgerða.
Um tvö nauðgunarmál að ræða
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar gróf kynferðisbrot sem nemandi við Háskólann í Reykjavík á að hafa framið gegn tveimur konum, sem eru samnemendur hans, í október. Málið hefur vakið óhug meðal nemenda og kennara við skólann.