Lífið

Fréttamaður brást ókvæða við þegar tölvusnúra datt úr sambandi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ian King er mikilsmetinn viðskiptafréttamaður í Bretlandi.
Ian King er mikilsmetinn viðskiptafréttamaður í Bretlandi. vísir/skjáskot
Fréttamaðurinn Ian King hjá hinni bresku sjónvarpsstöð Sky News vill eflaust gleyma gærdeginum sem fyrst.

Í beinu sjónvarpsviðtali við Michelle Meyer, sem er yfir bandarísku greiningardeild Bank of America, varð King fyrir því óláni að ein snúran sem lá í tölvuna hans datt úr sambandi.

Brást hann þá ókvæða við og hreytti út úr sér fúkyrði í þann mund sem Meyer ætlaði að taka til máls. Ian King sá strax að sér og baðst afsökunar á orðbragðinu, bæði í útsendingunni sem og á Twitter-síðu sinni en brot úr útsendingu gærdagsins má sjá hér að neðan.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×