Formúla 1

Lewis Hamilton fyrstur í mark í Kanada

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton hélt fast í stjórnartaumana í dag, Rosberg gat ekkert gert til að nálgast hann.
Hamilton hélt fast í stjórnartaumana í dag, Rosberg gat ekkert gert til að nálgast hann. Vísir/getty
Lewis Hamitlon á Mercedes vann í Kanada, liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji.

Ræsingin var tíðindalítil, Sebastian Vettel komst fram úr tveimur bílum á fyrsta hring. Annars gerðist lítið og allir ökumenn höguðu sér vel.

Vettel tók þjónustuhlé á sjöunda hring en eitthvað klikkaði hjá Ferrari og hléið varð ansi langt.

Felipe Massa var iðinn við fram úr akstur í dag og eftir 22 hringi var hann orðinn sjöundi eftir að hafa ræst 15.

„Við verðum nauðsynlega að spara eldsneyti,“ fékk Fernando Alonso að heyra eftir 24 hringi. Svarið frá Alonso var einfaldlega „ég vil það ekki.“

Kimi Raikkonen átti smá augnablik eftir þjónustuhlé og snerist í næst síðustu beygju. Bottas nýtti tækifærið og tók þjónustuhlé og kom út fyrir framan landa sinn, Raikkonen.

Vettel og Nico Hulkenberg á Force India voru búnir að berjast nokkra hringi um sjöunda sætið. Hulkenberg snerist og Vettel þurfti að fara út fyrir brautarmörk til að forðast árekstur.

Marcus Ericsson á undan hinum afar uppteknu Felipe Massa og Sebastian VettelVísir/Getty
Alonso hætti keppni á hring 46 þriðju keppnina í röð. Vélavandræðin virðast nánast óendanleg hjá McLaren-Honda. Alonso var jafnframt fyrsti ökumaðurinn til að detta úr keppni í dag.

Romain Grjosean á Lotus klúðraði framúrakstri þegar hann var að hringa Will Stevens á Manor, þeir lentu í samstuði. Grosjean fékk að launum fimm sekúndna refsingu en náði þrátt fyrir það síðasta stigasætinu.

Jenson Button á McLaren hætti keppni á hring 57. McLaren átti ekki góðan dag, hvorugur bíll liðsins komst í mark.

Roberto Merhi á Manor hætti keppni undir lokin, þetta var fyrsta keppnin sem Manor nær ekki að ljúka.

Baráttan innan Mercedes liðsins var búinn að malla alla keppnina og náði svo hámarki undir lok keppninnar. Rosberg hafði þurft að halda bremsunum köldum og Hamilton hafði þurft að spara eldsneyti. Bilið á milli Hamilton og Rosberg var búið að vera nálægt einni og hálfri sekúndu síðan um miðja keppni. Hamilton átti svör við öllum tilraunum Rosberg til að reyna að minnka bilið.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort af brautinni í Montreal ásamt öllum úrslitum helgarinnar.


Tengdar fréttir

Hamilton á ráspól í Kanada

Lewis Hamilton á Mercedes náði sínum fjórða ráspól í Kanada. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.

Hamilton: Ég stefni á að vinna í Kanada

Lewis Hamilton hefur átt afar góðu gengi að fagna í Kanada á undanförnum árum. Hann stefnir á að snúa aftur til vinnandi vegar eftir vonbrigðin í Mónakó.

Ferrari og Honda nota uppfærsluskammta

Mercedes og Renault hafa staðfest að vélasmiðirnir hafa ekki notað uppfærsluskammta sína. Ferrari og Honda hafa byrjað að nýta sér sína skammta.

Hamilton fljótastur á föstudagsæfingum

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins. Rigning á seinni æfingunni sendi Hamilton útaf, hann endaði æfingunna á varnarvegg.

Rosberg: Á morgun eru möguleikar

Lewis Hamilton náði sínum fjórða ráspól í Kanada í dag. Hann ræsir fremstur í keppninni á morgun. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×