Máli Annþórs og Barkar frestað Nadine Guðrún Yaghi skrifar 8. október 2015 08:00 Fangelsið að Litla-Hrauni „
Skýringin á frestuninni hljómar ekkert ósennilega í sjálfu sér en í ljósi þess að þeir hafi haft þetta yfir sér í meira en þrjú ár þá kemur þetta sér mjög illa,“ segir Hólmgeir Elías Flosason, verjandi Annþórs Kristjáns Karlssonar í sakamáli gegn honum og Berki Birgissyni vegna andláts samfanga þeirra á Litla-Hrauni í maí 2012. Aðalmeðferð málsins átti að fara fram dagana 15. og 16. október næstkomandi en hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Skýringin er sú að erfiðleikar hafi komið upp við boðun vitna og þá sérstaklega við boðun erlendra sérfræðinga sem fengnir voru til að meta skýrslur íslenskra sérfræðinga um andlát fangans. Allar skýrslur erlendu sérfræðinganna eru á öndverðum meiði við fyrri skýrslur og renna ekki stoðum undir málatilbúnað ákæruvaldsins. „Þetta hefur haft mjög slæm áhrif á skjólstæðing minn, ekki síst á núverandi afplánun hans. Til dæmis eru hann og Börkur búnir að missa af því að komast í opið úrræði vegna málsins.“
Mest lesið Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Erlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Erlent Tvær á toppnum Innlent Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Innlent Leitaði á lögreglustöð með áverka eftir líkamsárás Innlent Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Erlent Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Innlent Fleiri fréttir Leitaði á lögreglustöð með áverka eftir líkamsárás Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Tvær á toppnum Gasmengun helsta hættan í Grindavík „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Opna Grindavík á ný Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Sjá meira