Viðskipti innlent

QuizUp komið út fyrir Windows-síma

Spurningaleikurinn vinsæli eykur sífellt umsvif sín.
Spurningaleikurinn vinsæli eykur sífellt umsvif sín.
QuizUp, stærsti spurningaleikur heims, sem framleiddur er af íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Plain Vanilla, er nú einnig fáanlegur fyrir eigendur Windows-síma en fram að þessu hefur aðeins verið hægt að spila leikinn í tækjum sem keyra á iOS-stýrikerfinu og á Android-tækjum. Nú er því hægt að spila QuizUp í rúmlega 99% allra stýrikerfa í farsímum.



Windows-síminn oft útundan

Eigendur Windows-síma (áður Nokia) búa ekki við sama úrval af öppum og iPhone og Android símanotendur, en það krefst töluverðs auka umstangs fyrir þá sem þróa farsímaöpp að aðlaga þau ólíkum kerfum. Vegna þess hversu lítil markaðshlutdeild Windows stýrikerfisins er hjá farsímaframleiðendum, í samanburði við áðurnefnda risa, þá kjósa sum hugbúnaðarfyrirtæki einfaldlega að sleppa því að gefa öppin út fyrir Windows síma. Það eru helst þau öpp sem ná hvað mestum vinsældum sem koma einnig út á Windows, þó að stundum geti verið bið eftir því.

Önnur kynslóð QuizUp leiksins kom út í lok maí en í nýju útgáfunni er lögð meiri áhersla á samskipti og að tengja fólk með svipuð áhugamál saman. Er þessi útgáfa nú fáanleg í þremur vinsælustu farsíma-stýrikerfum heims. Virkir notendur eru mjög duglegir að deila alls kyns efni með öðrum spilurum tengt sínu áhugamáli, ekki ósvipað og þekkist á öðrum samfélagsmiðlum.



„Ánægjulegt fyrir aðdáendur - enn ánægjulegra fyrir Microsoft“

Erlendir fjölmiðlar hafa í umfjöllun sinni nefnt að útgáfa QuizUp fyrir Windows-síma sé ánægjuleg fyrir aðdáendur leiksins en jafnvel enn betri fréttur fyrir Microsoft framleiðanda Windows-síma. Erfiðlega hafi reynst fyrir tölvurisann að fá leikjaframleiðendur til að þróa öpp fyrir Windows-síma og markaðshlutdeild símanna hafi dregist saman á undanförnum mánuðum. Það sé því jákvætt að fá vinsælan spurningaleik eins og QuizUp um borð.

33 milljónir náð í QuizUp – 30.000 nýir dag hvern

Í QuizUp er að finna yfir 600 þúsund spurningar í 1.200 flokkum. 33 milljónir manna hafa náð í leikinn og 30 þúsund nýir notendur bætast við að meðaltali hvern einasta dag. Virkir spilarar spila tæplega 7 milljónir leikja á dag og eyða að meðaltali 30 mínútum í að spila leikinn dag hvern. Í heildina hafa verið spilaðir rúmlega 4 milljarðar leikja þar sem spilarar hafa svarað 28 milljörðum spurninga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×