Lífið

Danskur strákur eyðir milljónum til að líkjast Ronaldo

Stefán Árni Pálsson skrifar
Shanta Ronaldo hefur látið breyta nafninu sínu.
Shanta Ronaldo hefur látið breyta nafninu sínu. vísir
Einn æstur aðdáandi Cristiano Ronaldo eyðir milljónum í það eitt að líkjast knattspyrnumanninum í útliti.

Ronaldo er einn allra besti knattspyrnumaður sögunnar og leikur hann með Real Madrid. Þessi 30 ára Portúgali á milljónir aðdáenda en Daninn Shanta Ronaldo fer skrefinu lengra en aðrir.

Þessi 17 ára drengur hefur viðkennt að hafa eytt milljónum króna í það að líkjast Ronaldo.

„Ég er með einskonar þráhyggju fyrir honum,“ segir Shanta við Daily Mirror.

„Ég hef hitt hann nokkrum sinnum og ég get ekki útskýrt hversu frábær manneskja hann er.

Shanta hefur farið fimm sinnum til Madrid á þessu ári og hitt nokkrum sinnum á Cristiano.

„Stundum bíð ég á æfingasvæðinu frá níu á morgnanna til tvö um nóttina, bara til að hitta hann. Hann er farinn að þekkja mig og núna fæ ég að hitta hann í hvert einasta skipti sem ég kem til Madrid. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×