Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands stendur fyrir árlegri ráðstefnu í tenglum við úrslitaleik Borgunarbikarsins sem verður á milli KR og Vals um aðra helgi.
Knattspyrnuþjálfarafélagið heldur ráðstefnuna í samstarfi við Knattspyrnusamband Íslands og að þessu sinni er boðið upp á athyglisverða erlenda fyrirlesarar eins og fram kemur í frétt á heimasíðu KSÍ.
Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru nefnilega Aloys Wijnker, yfirþjálfari yngri flokka hjá AZ Alkmaar, og Martyn Heather, yfirmaður fræðslumála hjá ensku úrvalsdeildinni. Þjálfarar liðanna sem keppa til úrslita, Bjarni Guðjónsson hjá KR og Ólafur Jóhannesson hjá Val, heilsa líka upp á gesti og sérfræðingar spá í spilin.
Aloys Wijnker, yfirþjálfari yngri flokka hjá AZ Alkmaar segir frá starfi akademíu félagsins en hún var í vor kosin sú besta í Hollandi. Wijnker mun einnig vera
með sýnikennslu en fjölmargir íslenskir leikmenn hafa verið á mála hjá félaginu undanfarinn áratug.
Martyn Heather, yfirmaður fræðslumála hjá ensku úrvalsdeildinni segir frá langtímaáætlun deildarinnar í þróun ungra leikmanna (Elite Player Performance Plan). EPPP er ætlað að auka hlut uppaldra leikmanna í úrvalsdeildinni og tekur til ýmissa þátta á borð við þjálfun, umgjörð, menntun og kostnað.
Athygli þjálfara er vakin á því að ráðstefnan veitir 6 endurmenntunarstig á UEFA A og UEFA B þjálfaragráðum.
Dagskrá
10.00 Ávarp formanns KÞÍ
10.10 Uppbygging yngri flokka AZ Alkmaar
Aloys Wijnker, yfirþjálfari yngri flokka hjá AZ Alkmaar
11.30 Sýnikennsla Aloys Wijnker
12.30 Matur
13.15 Elite Player Performance Plan
Martyn Heather, yfirmaður fræðslumála hjá Premier League í Englandi
14.15 Þjálfarar liðanna sem leika úrslitaleikinn segja frá undirbúningi liðanna
14.45 Kaffi og spáð í leikinn með sérfræðingum
16.00 Bikarúrslitaleikur
Verð á ráðstefnuna er 5.000 krónur fyrir félagsmenn KÞÍ. Verð fyrir þá sem eru ekki félagsmenn er 10.000 krónur. Innifalið í verðinu er hádegismatur og miði á bikarúrslitaleikinn.
Ráðstefnan er opin öllum. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á arnarbill@ksi.is með upplýsingum um nafn og kennitölu. Ráðstefnan verður haldin í Laugardalnum.
Athyglisverðir erlendir fyrirlesarar á bikarúrslitaráðstefnu KÞÍ 2015
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið





„Þeir spila mjög fast og komast upp með það“
Körfubolti

Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport
Enski boltinn



