Lífið

Heldur upp á afmæli að hætti Betu drottningar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Þó mér finnist sjötíu há tala í þessu samhengi þá er ég hamingjusöm yfir að hafa náð þeim aldri,“ segir Þórunn Blöndal.
„Þó mér finnist sjötíu há tala í þessu samhengi þá er ég hamingjusöm yfir að hafa náð þeim aldri,“ segir Þórunn Blöndal. Vísir/Valli
„Ég er orðin svo leið á að eiga afmæli á þorranum að ég ætla að vera eins og Elísabet Englandsdrottning, hún á venjulegan afmælisdag og svo annan opinberan. Ég ætla að eiga opinberan afmælisdag í ágúst og þá ætla ég að halda garðveislu. Það eru allir svo gráir og kvefaðir og daprir á þessum tíma að ég ætla að bíða með stórveislu þar til sól og sumar er á landinu, garðurinn í blóma og fólkið fallegt, brúnt og útitekið og fullt af D-vítamíni!“ Þetta segir Þórunn Blöndal dósent sem er sjötug í dag.

Reyndar kveðst Þórunn hafa haldið veislu á fimmtugsafmælinu sem hafi verið mjög skemmtileg en svona verði fyrirkomulagið í ár.

„Ég á fínan garð rétt við Hamarinn í Hafnarfirði og hingað til hefur maðurinn minn haft einkaafnot af honum fyrir afmælisveislur!“ segir hún glaðlega.

Þrátt fyrir árstímann á Þórunn von á góðum degi í dag með fjölskyldunni.

„Við hjónin eigum þrjár dætur og þær ætla að elda. Ein þeirra flaug heim frá Lúxemborg í vonda veðrinu á mánudaginn til að vera með okkur.

Barnabörnin verða flest hér líka, þau eru fimm á aldrinum átta til 27 ára.“

Þórunn kennir við Háskóla Íslands og kveðst ekki hafa fengið neitt uppsagnarbréf þrátt fyrir hækkandi aldurstölu.

„Ég er í miðjum kúrsi og veit ekkert hvað verður um mig. Ætla bara að bíða og vita hvort einhver man eftir að láta mig fara. Það er líklegt að það verði launadeildin, hún er með kennitöluna og lokar sennilega á mig einhvern daginn.

En ég hef engar áhyggjur. Þó mér finnist sjötíu há tala í þessu samhengi þá er ég hamingjusöm yfir að hafa náð þeim aldri, ég er búin að missa svo marga góða vini gegnum tíðina sem ekki hafa náð honum. Auðvitað ber að fagna hverju ári sem manni tekst að þrauka gegnum myrkur og kulda.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×