Bíó og sjónvarp

Íslandi bregður fyrir í stiklu fyrir Sense8-þættina

Birgir Olgeirsson skrifar
Leikkonan Daryl Hannah fer með eitt aðalhlutverkanna í þáttunum Sense8 sem voru teknir upp hér á landi í fyrra.
Leikkonan Daryl Hannah fer með eitt aðalhlutverkanna í þáttunum Sense8 sem voru teknir upp hér á landi í fyrra. Vísir/Imdb/Youtube
Hér er komin fyrsta stiklan fyrir þættina Sense8 sem voru meðal annars teknir upp á Íslandi í fyrra. Þættirnir eru úr smiðjum Wachowski-systkinana, sem eru hvað þekktust fyrir Matrix-þríleikinn, en það er streymisveitan Netflix sem mun sýna þá.

Upptökurnar hér á landi voru umfangsmiklar en meðal annars var tekið upp á Akranesi, þar sem tökuliðið lagði undir sig fyrrverandi ellideild sjúkrahússins í bænum,  Þingholtunum í Reykjavík, Þjóðarbókhlöðunni, húsgrunninum við hliðina á tónleikahúsinu Hörpu, Hótel Sögu og Nesjavöllum. Þá má einnig búast við því að kennileiti Reykavíkur á borð við Perluna og Hallgrímskirkju verði í lykilhlutverki í þáttaröðinni.

Í þáttunum fá áhorfendur að fylgjast með 8 manneskjum sem búa á mismunandi stöðum í heiminum, bandarísku borgunum San Francisco og Chicago, Mexíkoborg, Lundúnum, Berlín, Íslandi, Mumbaí, Naíróbí og Seúl.

Þau tengjast andlega á yfirskilvitlegan hátt við dauða skynjanda sem tilheyrði öðru átta manna teymi. Samkvæmt þáttunum skapast nýtt átta manna mengi í hvert sinn sem einn úr öðru átta manna mengi lætur lífið.

Í fyrstu vita manneskjurnar átta ekki hvað hefur komið fyrir þær en þeim verður fljótlega ljóst að þær eru að deila skynjun með öðrum. Ein þeir gæti verið að gæða sér á indverskum mat og önnur fundið bragðið um leið þó svo að hún sé í annarri heimsálfu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.